BEINT STREYMI: Morgunverðarfundur um ofbeldi í nánum samböndum og vinnumarkaðinn

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna, standa ASÍ, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands fyrir morgunverðarfundi um ofbeldi í nánum samböndum og vinnumarkaðinn. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 5. mars.

Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 9:00 og dagskrá hefst 9:15

Á fundinum verður fjallað um eðli og birtingarmyndir ofbeldis í nánum samböndum og hversu mikilvægt er að vinnumarkaðurinn beini sjónum sínum að málefninu. Þá verður fjallað um alþjóðlega þróun og um hvað stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins og einstakir vinnustaðir hér á landi geta gert til þess að styðja við þolendur.

 

Dagskrá fundarins

  • Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, fjallar um ofbeldi í nánum samböndum og birtingarmyndir þess.
  • Dagný Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB, fjallar um alþjóðlega þróun, löggjöf og kjarasamninga og hvaða aðgerða er þörf á að grípa til hér á landi.
  • Á eftir erindum verður pallborð með Lindu, Dagnýju og Adriönu Karolinu Pétursdóttur, formanni Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi og framkvæmdastjóra mannauðs Rio Tinto á Íslandi.
  • Jenný Kristín Valberg, teymisstýra í Bjarkarhlíð, stýrir málþinginu.

 

Beint streymi af fundinum: