Þing BSRB: Kosningar og afgreiðsla mála í dag

Síðasti dagur 44. þings BSRB hófst kl. 9 í morgun. Eftir hádegi verður gengið til kosninga. Kosið verður í embætti BSRB, þ.e. embætti formanns, 1. varaformanns og 2. varaformanns. Auk formannanna þriggja mun ný stjórn BSRB verða skipuð sex meðstjórnendum sem verða kosnir sérstakri kosningu.

Nú stendur afgreiðsla þingmála yfir þar sem formenn málefna hópa kynna niðurstöðu vinnu síðustu daga. Vinnan lítur að gerð stefnu BSRB auk þess sem málefnahóparnir hafa unnið ályktanir hver í sínum málaflokki. Ályktanir og stefna BSRB að loknu 44. þingi ættu því að liggja fyrir síðar í dag.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?