Til hamingju með Kvenréttindadaginn

Kvenréttindadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag 19. júní. Það var þennan dag árið 1915 sem íslenskar konur fengu kosningarétt og um leið kjörgengi til Alþingis og verður þess áfanga minnst í dag, m.a. á Hallveigarstöðum þar sem hátíðardagskráin mun hefjast kl. 17:00.


Dagskrá:
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari í Borgarholtsskóla, ávarpar fundinn
Ragnheiður Davíðsdóttir, nemandi við Menntaskólann í Reykjavík, ávarpar fundinn
Una María Óskarsdóttir, forseti Kvenfélagasamband Íslands, ávarpar fundinn
Steinunn Stefánsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, ávarpar fundinn
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Kosningaréttur kvenna 100 ára, ávarpar fundinn
Menningar- og minningarsjóður kvenna veitir styrki til kvenna sem hyggjast ferðast vegna ritstarfa sinna í ár
Kaffi, rjómatertur og spjall


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?