Traust skiptir meira máli en lagaheimildir í kjaradeilum

Hrannar Már Gunnarsson lögfræðingur BSRB, Aldís Magnúsdóttir sáttasemjari og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir framkvæmdastjóri BSRB

Traust fremur en formlegar valdheimildir, sjálfstæði sáttasemjara, öflug samtök aðila vinnumarkaðarins og viðurkenning þeirra á sáttamiðlunarferlinu er lykillinn að árangursríkri sáttamiðlun í kjaradeilum. Þetta er ein helsta niðurstaða nýrrar skýrslu OECD um hlutverk ríkissáttasemjara á Norðurlöndunum, sem kynnt var á fundi í Stokkhólmi 16. nóvember.

Í skýrslunni, sem ber heitið Oiling the Wheels of Collective Bargaining: Labour Mediation in the Nordic Countries, er gerður samanburður á annarsvegar formlegum völdum og lagaheimildum, ríkissáttasemjara á Norðurlöndunum, og hinsvegar óformlegum völdum sem byggja á trausti aðila vinnumarkaðarins til sáttasemjaranna og aðila á milli. Embætti ríkissáttasemjara á Norðurlöndunum eru öll fremur fámenn og er embættið á Íslandi langminnst.

 

Velferðarstefna stjórnvalda hefur áhrif á kjarasamninga

Í skýrslunni er einnig rætt um samræmda launastefnu, en hún hefur verið ríkjandi í Svíþjóð og Finnlandi og að nokkru leyti í Danmörku og Noregi.

Róbert Farestveit, sviðstjóri hagsviðs ASÍ, benti á í umræðum um kosti og galla þeirrar stefnu, að norræna vinnumarkaðsmódelið byggðist ekki eingöngu á kjarasamningum heldur einnig á öflugri velferðarstefnu stjórnvalda. Þegar stjórnvöld tryggðu ekki eðlilega þróun tekjutilfærslukerfanna og heilbrigðan húsnæðismarkað, setti það þrýsting á launakröfur.

Hann benti á að miklar sveiflur í efnahagslífinu ýttu sömuleiðis undir launaskrið. Þessar aðstæður væru algengar á Íslandi og gerðu erfiðara að samhæfa kjarasamninga.

 

Aukinn þrýstingur á norræna vinnumarkaðsmódelið

Ýmsar áskoranir sem tengjast samræmdri launastefnu á Norðurlönunum voru einnig til umræðu. Þar á meðal mikill þrýstingur á laun vegna öldrunar þjóðanna og vaxandi þörf fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu vegna þess, en þegar er mikill skortur á starfsfólki í þessum greinum.

Þá hefur fyrirtækjum sem neita að gera kjarasamninga við starfsfólk sitt fjölgað á Norðurlöndunum. Slík afstaða gengur gegn þeirri ríku hefð sem er fyrir kjarasamningum á norrænum vinnumarkaði. Jafnframt fjölgar störfum þar sem starfsfólk nýtur lítilla eða engra réttinda samkvæmt kjarasamningum.

Sérstaklega var rætt um stöðuna í Finnlandi, þar sem stjórnvöld hafa skert réttindi launafólks á undanförnum árum. Breytingarnar hafa grafið undan trausti milli launafólks og atvinnurekenda og ógna því samstarfi sem norræna vinnumarkaðsmódelið byggist á.

Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins, taldi vantraust milli aðila vinnumarkaðarins eina helstu hindrunina í því að hægt væri að ná samkomulagi um samræmda launastefnu á Íslandi.

 

Traust er undirstaða norræna módelsins

Í lokaávarpi fundarins lagði Mats Wilhelm Ruland, ríkissáttasemjari Noregs, áherslu á að styrkur norræna vinnumarkaðsmódelsins byggði á trausti milli aðila frekar en löggjöf, styrkum samtökum launafólks og atvinnurekenda og sameiginlegum skilningi á samræmdri launastefnu. Sameiginlegar upplýsingar og tölfræði væru einnig mikilvægar forsendur samstarfsins.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB, og Hrannar Már Gunnarsson, lögfræðingur BSRB, sóttu fundinn fyrir hönd bandalagsins.