Vandi Sunnuhlíðar er vandi stjórnvalda

Stéttarfélög starfsmanna í Sunnuhlíð lýsa yfir þungum áhyggjum af rekstrarstöðu Sunnuhlíðar, sem virðist vera á leiðinni í þrot. Málefni aldraðra eru óumdeilanlega á ábyrgð ríkisins og það er stjórnvalda að tryggja jafnvægi og öryggi þessa hóps, án undanbragða.  Ef ríkið tekur ekki við rekstri Sunnuhlíðar munu íbúar þar missa heimili sín og fjölmargir starfsmenn missa atvinnu sína. Stjórnendur Sunnuhlíðar hafa ítrekað vakið athygli á erfiðri rekstrarstöðu heimilisins án árangurs. Skapast hefur óviðeigandi ástand fyrir starfsmenn og íbúa heimilisins.

Það er með öllu ólíðandi að málið skuli vera komið á þetta stig og útlit fyrir að óvissan muni hanga yfir íbúum og starfsmönnum yfir hátíðarnar. Rekstur Sunnuhlíðar er kominn í þrot, stjórnvöld þurfa að taka við sér og axla ábyrgð sína. Félögin hvetja heilbrigðisráðherra til þess að leysa mál Sunnuhlíðar farsællega fyrir íbúa og starfsmenn, án tafar.

Undirrituð stéttarfélög starfsmanna í Sunnuhlíð hafa sent eftirfarandi bréf til Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðissonar vegna vanda Sunnuhlíðar.

Árni Stefán Jónsson, SFR stéttarfélag í almannaþjónustu

Sigurður Bessason, Efling stéttarfélag        

Ólafur G. Skúlason, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga     

Unnur Pétursdóttir, Félag sjúkraþjálfara

Kristín Á. Guðmundsdóttir, Sjúkraliðafélag Íslands


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?