Veffluga lífeyrissjóðanna: Hagfellt ár

Árið 2014 er lífeyrissjóðum að hagfellt. Gunnar Baldvinsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, skrifar í áramótagrein í nýútkominni Vefflugu, að flest bendi til þess að ávöxtun sjóðanna verði góð og nokkuð yfir 3,5% langtímaviðmiði um ávöxtun.

Orðrétt skrifar hann: „Lág verðbólga er góð frétt fyrir lífeyrissjóðina þar sem skuldbindingar þeirra eru verðtryggðar. Hagstæð ávöxtun og lág verðbólga valda því að eignir aukast meira en skuldbindingar og staða lífeyrissjóða mun batna sem því nemur.“

Landssamtök lífeyrissjóða gefa út Veffluguna. Þriðja tölublað 2014 er komið út.

 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?