Verkfall SLFÍ og SFR

Verkfall hefst mánudaginn 12. maí kl. 08.00 til 16.00 hjá félagsmönnum SLFÍ og SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu, sem starfa hjá stofnunum innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Fyrirtæki og stofnanir innan SFV sem reknar eru fyrir opinbert fé og verkfallið nær til eru:

Ás Hveragerði, Dalbær, Eir, Grund, Hlévangur, HNLFÍ, Hornbrekka, Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Hrafnista í Kópavogi, Hrafnista Reykjanesi, Kumbaravogur, Lundur, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún og Sunnuhlíð.

Síðustu samningafundir voru föstudaginn 9. maí og sunnudaginn 11. maí, þar sem reynt var til þrautar að ná samningum en án árangurs.

Meginkröfur eru að félagsmenn sem starfa á stofnunum innan SFV haldi  sambærilegum réttindum og opinberir starfsmenn.  Fram til þessa hafa réttindin verið viðurkennd og  ekki  verið ágreiningur þar um. Einnig er þess krafist að jafnlaunaátakið sem  kvennastéttir innan heilbrigðisstofnana ríkisins fengu frá 1. mars 2013 komi inn í samningana og verði greitt afturvirkt til félagsmanna SFR og SLFÍ frá 1. mars 2013.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?