Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar er komin út og var kynnt á fundi í húsakynnum ríkissáttasemjara í morgun 30. júní. Í skýrslunni er fjallað um þróun efnahags- og vinnumarkaðsmála, launa og kjarasamninga. Nýtt í skýrslunni er tölfræði um launabreytingar eftir launastigi, mörkuðum og heildarsamtökum launafólks.
Launaþróun og kaupmáttur eftir mörkuðum
Yfirstandandi kjarasamningslota hófst í mars 2024 og ná sundurliðuð gögn KTN um launaþróun frá upphafi samningslotunnar fram til janúar 2026. Áætlað er að nærri 260 kjarasamningar hafi nú verið undirritaðir í kjarasamningslotunni fyrir allflest launafólk bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Óloknir samningar eru fáir og ná til um 1% launafólks. Á tímabilinu komu þrjár samningsbundnar launahækkanir til framkvæmda á almenna markaðnum en tvær á hinum opinbera.
Frá febrúar 2024 til janúar 2026 hækkaði grunntímakaup sem hér segir:
- Á almennum markaði um 17,0%,
- Hjá ríki um 14,8%,
- Hjá Reykjavíkurborg um 13,8%
- Hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 15,3%.
Um helmingur samningstímans er nú liðinn og hefur verðbólga á tímabilinu reynst þrálátari en spáð var í aðdraganda samninganna. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar á tímabilinu jókst kaupmáttur grunntímakaups frá febrúar 2024 til janúar 2026 sem hér segir:
- Á almennum vinnumarkaði um 7,8%
- hjá ríki um 5,7%,
- hjá Reykjavíkurborg um 4,8%
- hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 6,1%.
Þá kemur fram að almennt var samið til fjögurra ára og farin blönduð leið krónutölu- og prósentuhækkana. Samningsbundnar launahækkanir eru því hlutfallslega mestar á lægri laun. Samningar Kennarasambands Íslands við ríki og sveitarfélög voru frábrugðnir öðrum samningum vegna áherslu á virðismat.
Í Kjaratölfræðinefnd sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, þar á meðal hagfræðingur BSRB, fulltrúar ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands.
Vorskýrslu 2026 ásamt fylgigögnum má finna á vef kjaratölfræðinefndar ktn.is.
Þar má einnig horfa á upptöku af kynningu skýrslunnar.