Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar kynnt á föstudag

Fjallað verður um kjarasamningslotuna sem hófst 2019 í skýrslu Kjaratölfræðinefndar. Myndin er frá baráttufundi opinberra starfsmanna í janúar 2020.

Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag sem BSRB tekur þátt í, verður kynnt næstkomandi föstudag, 30. apríl. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst árið 2019 og stendur enn, þróun efnahagsmála og launa.

Kynningin verður í formi fjarfundar sem streymt verður í gegnum vef Kjaratölfræðinefndar. Fundurinn hefst klukkan 10 og er áætlað er að hann standi í um 40 mínútur.

Á fundinum mun Edda Rós Karlsdóttir, formaður nefndarinnar, kynna skýrsluna og gera grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum. Þá mun Margrét K. Indriðadóttir frá Hagstofu Íslands fjalla um áhrif vinnutímastyttingar á laun.

Meðal nýjunga í skýrslunni er samanburður á launaþróun karla og kvenna, og á launaþróun innflytjenda og annarra. Tekið verður við fyrirspurnum í gegnum netfangið ktn@ktn.is meðan á fundinum stendur. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Vorskýrslan er önnur skýrsla nefndarinnar, en gert er ráð fyrir framvegis komi út tvær á ári – vor og haust.

Skýrsluna má finna hér. Skýrslan og tölfræðigögn eru einnig aðgengileg á vef Kjaratölfræðinefndar

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?