Yfirlýsing frá Starfsmannafélagi Rúv

Starfsmannafélag Rúv hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna villandi umræðu um Ríkisútvarpið síðustu daga. Í yfirlýsingunni eru ráðamenn hvattir til að notast við staðreyndir þegar þeir fjalla um Rúv. Yfirlýsinguna í heild má sjá hér að neðan:

 



Yfirlýsing frá starfsmannasamtökum Ríkisútvarpsins:

Skýrsluhöfundar skauta framhjá raunverulegri hagræðingu og jákvæðum viðsnúningi í rekstri RÚV ohf.

Á hverju hausti þegar vinna við fjárlagafrumvarp stendur yfir hefst sama atburðarrásin þar sem þyrlað er upp moldviðri í kringum starfsemi RÚV ohf. Þeir sem vilja hag fyrirtækisins sem minnstan tala hátt og finna starfseminni og starfi okkar flest til foráttu í þeim augljósa tilgangi að stuðla að því að Alþingi skeri enn eina ferðina niður fjárveitingar til RÚV.

Mikil fækkun starfsfólks.

RÚV hefur hagrætt mikið á undanförnum árum og veitir nú landsmönnum meiri þjónustu með mun færra starfsfólki og fyrir minna fjármagn en áður. Frá 2007 hefur verið hagrætt mjög mikið í rekstri RÚV og starfsmönnum meðal annars fækkað um tæplega eitt hundrað talsins.

Andstæðingar RÚV hagræða staðreyndum.

Fyrir rúmu ári síðan gall í andstæðingum RÚV að fyrirtækið þyrfti að hagræða og ná tökum á rekstrinum. Þá var líka kallað eftir því að RÚV lækkaði skuldir. Nú, ári síðar, hefur RÚV nýlega kynnt uppgjör sem sýnir algeran viðsnúning og hallalausan rekstur. Starfsfólk hefur rýmt stóran hluta af nýtanlegu rými í Útvarpshúsinu og RÚV leigt frá sér til Reykjavíkurborgar sem skilar miklum ávinningi. Nýfrágengin sala á byggingarrétti á lóðinni við Efstaleiti mun svo leiða til mestu skuldalækkunar í sögu RÚV. Það er því óhætt að segja að markverður árangur hafi náðst. En nýtur félagið góðs af þessum góða árangri í umræðu andstæðinga RÚV? Nei þvert á móti er eins og þeir verði bara enn ákveðnari í að fela þennan góða rekstrarárangur sem náðst hefur á undanförnu árum.

Viðsnúningur í rekstri RÚV.

Staðreyndin er sú að RÚV ohf hefur verið yfirskuldsett frá stofnun og allar stjórnir þess hafa frá upphafi bent á það.  Frá stofnun RÚV ohf. hefur ríkið haldið eftir hátt í þremur milljörðum af útvarpsgjaldi sem almenningur taldi sig vera að greiða til RÚV. Framlög til RÚV eru margfalt lægri en allra systurstofnana á Norðurlöndum og jafnvel þó borin séu saman framlög á hvern einstakling (per capita), þá fær RÚV minna en þær flestar, þrátt fyrir fámenni þjóðarinnar.  Alger viðsnúningur hefur orðið í rekstri RÚV ohf síðustu misserin eins og ársreikningar félagsins staðfesta.  

Við óskum  eftir vinnufriði.

Við starfsfólkið óskum eftir því að stjórnmálamenn og aðrir sýni þá sjálfsögðu kurteisi að byggja mál sitt á staðreyndum. Starfsfólk RÚV er langþreytt á ófaglegri umræðu.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?