34% starfsfólks leikskóla búi við félags- og efnislegan skort

Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu kynnir niðurstöður skýrslunnar

Hærra hlutfall þeirra sem starfa í leikskólum býr við verri fjárhagsstöðu en annað launafólk í heildarsamtökunum tveimur. Starfsfólk í grunnskólum býr að jafnaði einnig við verri fjárhagsstöðu en annað launafólk. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vörðu - Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins um stöðu starfsfólks í leik- og grunnskólum í samanburði við annað launafólk.

 

Helmingur þeirra sem starfa í leikskóla getur ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum

Hátt hlutfall leikskólastarfsfólks (49%) gæti ekki mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Hið sama á við um tæplega fjóra af hverjum tíu þeirra sem starfa í grunnskólum (37%). Hlutfallið er 30% þegar litið er til annars launafólks innan ASÍ og BSRB.

 

Þriðjungur þeirra sem starfa í leikskóla býr við skort eða verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum

Í könnuninni var spurt um þrettán þætti sem Hagstofa Evrópusambandsins notar til að mæla efnahagslega og félagslega stöðu fólks. Þættirnir sem spurt er um varða rekstur heimilis en einnig einstaklingsbundna þætti. Niðurstöðurnar sýna að umtalvert hærra hlutfall, sér í lagi þeirra sem starfa í leikskóla, býr samkvæmt skilgreiningu við félags- og efnislegan skort en það á við um 34% þeirra. Af þeim eru 18% sem búa við verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum. Fjórðungur þeirra sem starfa í grunnskólum fellur undir sömu skilgreiningu (25%) en sama á við um ríflega fimmtung almennt meðal launafólks (22%).

 

Hærra hlutfall foreldra sem starfa í leik- og grunnskólum skortir grunnþætti fyrir börnin sín

Um eða yfir fjórðungur þeirra sem starfa í leik- og grunnskólum og eru með börn á heimili hefur sökum fjárskorts á síðastliðnu ári ekki getað greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna, nauðsynlegan fatnað fyrir börn sín eða gefið börnum sínum eins næringarríkan mat og þau vilja. Hlutfallið er í öllum tilfellum hærra en almennt meðal launafólks í heildarsamtökunum tveimur.

 

Lægra hlutfall starfsfólks í leikskólum er í eigin húsnæði

Mikill munur er á stöðu leikskólastarfsfólks og grunnskólastarfsfólks á húsnæðismarkaði. Meirihluti þeirra sem starfa í grunnskóla er í eigin húsnæði eða ríflega sjö af hverjum tíu (73%). Sama á hins vegar við um tæplega sex af hverjum tíu meðal þeirra sem starfa í leikskólum (57%).

 

Fjórir af hverjum tíu þeirra sem starfa í leikskóla mælast með slæma andlega heilsu

Hátt hlutfall leikskólastarfsfólks mælist með slæma andlega heilsu eða fjórir af hverjum tíu (38%) en sama á við mun lægra hlutfall þeirra sem starfa í grunnskólum eða tæplega fjórðung (23%). Tæplega helmingur þeirra sem starfa í leikskóla finnur meira en helming tímans eða daglega fyrir þreytu og orkuleysi (48%). Tæplega þremur af hverjum tíu líður illa með sjálfan sig eða finnst að þeir hafi ekki staðið sig í stykkinu gagnvart sjálfum sér eða fjölskyldu sinni (28%).

 

Í skýrslunni er greint frá stöðu starfsfólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB sem starfa í leik- og grunnskólum. Skýrslan nær ekki til fagmenntaðra kennara þar sem þeir eru ekki félagar í heildarsamtökunum tveimur.

 

Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar. Hér má lesa skýrsluna í heild sinni.