Árið 1936 samþykkti Alþingi lög um alþýðutryggingar og þar með var lagður grunnur að almannatryggingakerfinu á Íslandi. Af þessu tilefni buðu Tryggingastofnun, Sjúkratryggingar Íslands og Vinnumálastofnun til afmælisráðstefnu þar sem sjónum var beint að sögu almannatrygginga, mikilvægi samtryggingar fyrir afkomuöryggi fólks og þeim áskorunum sem kerfið stendur frammi fyrir til framtíðar.
Erlendir gestir veittu innsýn í almannatryggingakerfi nágrannalanda okkar og aðilar vinnumarkaðarins fjölluðu meðal annars um mikilvægt hlutverk lífeyrissjóðanna í afkomuöryggi landsmanna.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB, tók þátt í pallborðsumræðum á ráðstefnunni. Þar lagði hún meðal annars áherslu á mikilvægan þátt verkalýðshreyfingarinnar í mótun og þróun almannatrygginga á Íslandi og mikilvægi þess að standa vörð um öflugt samtryggingarkerfi.
Í tilefni afmælisins var jafnframt opnaður sérstakur vefur, almannatryggingar.is. þar sem finna má dagskrá ráðstefnunnar og greinar um sögu almannatrygginga og þessi merku tímamót.