Formannaráð BSRB mótmælir harðlega fjöldauppsögnum hjá Reykjavíkurborg í ályktun frá fundi ráðsins í morgun

Formannaráð BSRB mótmælir harðlega fjöldauppsögnum hjá Reykjavíkurborg og varar við því að þær muni leiða til verulegrar skerðingar á þjónustu, ekki síst við börn, ungmenni og fólk í viðkvæmri stöðu.

Í ályktun sem samþykkt var á fundi formannaráðs BSRB í morgun er Reykjavíkurborg hvött til að eiga raunverulegt samráð við starfsfólk og stéttarfélög vegna fyrirhugaðra breytinga. Formannaráð bendir á að ákall hafi verið eftir bættri þjónustu við börn og ungmenni á undanförnum misserum til að tryggja öryggi þeirra, þroska og velferð. Fjöldauppsagnirnar vinni beinlínis gegn þeim markmiðum.

 

Skerðing þjónustu getur orðið samfélaginu dýrkeypt

Í ályktuninni er lögð áhersla á að almannaþjónusta sé grunnstoð samfélagsins. Þegar dregið sé úr þjónustu við börn, fjölskyldur og annað fólk sem þarf á henni að halda hverfi kostnaðurinn ekki. Hann geti þess í stað birst síðar í auknu álagi á aðra opinbera þjónustu, atvinnuleysi, félagslegum vanda og auknum ójöfnuði.

Formannaráð BSRB gagnrýnir jafnframt að ekki hafi verið gerðar opinberar greiningar sem skýra hvaða sýn liggur að baki þeim umfangsmiklu breytingum sem ráðist hefur verið í eða réttlæta þá þjónustuskerðingu sem af þeim leiðir. Þá hafi ekki verið sýnt fram á að tilefni sé til fjöldauppsagna.

 

Útvistun tryggir ekki raunverulegan sparnað

Formannaráðið varar einnig við því að útvistun verkefna sé notuð sem leið til sparnaðar. Þó hún kunni að lækka launakostnað geti hún á móti aukið kostnað vegna aðkeyptrar þjónustu. Þá geti útvistun dregið úr samhæfingu þjónustunnar og þar með gæðum hennar.

BSRB krefst þess að Reykjavíkurborg dragi úr þeirri óvissu sem nú hefur skapast, bæði fyrir fólkið sem treystir á þjónustu borgarinnar og starfsfólkið sem sinnir henni.

 

Lesa má ályktun formannaráðs BSRB í heild sinni hér