BSRB-húsið opnar á nýjan leik

Húsnæði BSRB við Grettisgötu 89 er nú opið gestum á nýjan leik.

Nú þegar stjórnvöld hafa ákveðið að rýmka sóttvarnaraðgerðir og verulega hefur dregið úr smitum innanlands hefur BSRB-húsið við Grettisgötu 89 verið opnað á ný frá og með deginum í dag.

Húsið var lokað fyrir öðrum en starfsfólki frá 25. mars vegna aðgerða til að stemma stigu við útbreiðslu kórónaveirunnar hér á landi.

Við biðjum gesti í húsinu að virða merkingar um sóttvarnir sem settar hafa verið upp, notast við grímur, halda sig við tveggja metra regluna og vera duglega að nota spritt til að sótthreinsa. Að því sögðu bjóðum við þau sem eiga erindi við BSRB, Styrktarsjóð BSRB eða þau félög sem eru með skrifstofu í félagamiðstöðinni við Grettisgötu 89 innilega velkomin!


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?