BSRB í aðgerðahópi ráðuneytis vegna #metoo

Aðgerðahópur Velferðarráðuneytisins kom saman til fundar á mánudag.

Skipaður hefur verið aðgerðahópur á vegum Velferðarráðuneytisins í kjölfar #metoo byltingarinnar til að fylgja eftir aðgerðum á vinnumarkaði sem miða að því að koma í veg fyrir einelti, kynferðislegt og kynbundið áreiti og ofbeldi á vinnustöðum.

Aðgerðahópurinn mun taka við hugmyndum að úrbótum sem settar hafa verið fram á vinnufundum breiðs hóps úr atvinnulífinu. Mun hópurinn meðal annars vinna úr hugmyndum um fræðslu til fyrirtækja, heimasíðu með aðgengi að upplýsingum um málefnið og leiðbeiningum til stjórnenda um stefnumótun og aðgerðir gegn einelti og kynbundnu áreiti á vinnustöðum.

Hópurinn kom saman á mánudag og vann að útfærslum á hugmyndum sínum og mun hittast aftur í upphafi næsta árs til að meta hvernig til hefur tekist af hálfu þeirra vinnuhópa sem skipaðir hafa verið af opinberum aðilum og ýta á frekari aðgerðir ef ástæða er til.

Eftirtaldir aðilar skipa hópinn vegna #metoo og krefjast aðgerða til að vinna gegn einelti og áreiti og vinnustöðum. Jafnréttisstofa, Alþýðusamband Íslands, BSRB, Bandalag háskólamanna, Kennarasamband Íslands, Samtök atvinnulífsins, Fjármálaráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisins, VIRK, Félagi kvenna í atvinnulífinu, Samband íslenskra sveitarfélaga, Bjarkarhlíð, Kvenréttindafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Félag mannauðsstjóra og Vinnueftirlitið.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?