BSRB krefst þess að lögreglumenn í sóttkví fái greitt

Lögreglumenn geta þurft að fara í sóttkví vegna afskipta af einstaklingum sem gætu verið með COVID-19.

BSRB hefur sent öllum lögreglustjórum á landinu bréf þar sem farið er fram á að lögreglumenn sem þurfa að fara í sóttkví vegna gruns um COVID-19 smit verði greitt fyrir þann tíma sem þeir þurfa að vera í sóttkví og vaktafrí frestist þar til þeir eru lausir úr henni.

Upp hafa komið tvö tilvik þar sem lögreglumenn þurftu að fara í sóttkví vegna afskipta af einstaklingum sem grunur lék á að væru með COVID-19 smit. Í báðum tilvikum er það afstaða yfirmanna þeirra að þeir eigi ekki rétt til greiðslna á meðan þeir dvelja í sóttkví, fjarri heimili og fjölskyldum, né fái þeir aukinn frítökurétt vegna vaktafrídaga sem þeir eiga að fá á meðan þeir eru í sóttkvínni.

„Lögreglumenn eru framlínufólk í öllum skilningi þess orðs. Þeir mæta almennt fyrstir á vettvang og hafa ekki val um það hvort þeir sinni útkalli þegar eftir þjónustu þeirra er leitað. Þeir eru oftar en ekki ómeðvitaðir um það hvað bíður þeirra og eru berskjaldaðir gagnvart utanaðkomandi ógn eins og smitsjúkdómum,“ segir meðal annars í bréfi BSRB til lögreglustjóranna.

Bandalagið telur með öllu óásættanlegt að framlínufólki eins og lögreglumönnum sé ekki bættur sá frítími sem þeir neyðast til að eyða í sóttkví vegna þess að þeir hafa orðið útsettir fyrir smiti af lífshættulegum sjúkdómi í störfum sínum.

BSRB gerir þá kröfu að lögreglumenn fái greiddar yfirvinnustundir fyrir þann tíma sem þeir verja í sóttkví utan skilgreindra vakta. Það sé eðlilegt endurgjald fyrir þá áhættu sem þeir taka í sínum störfum og þá staðreynd að þeir glata dýrmætum frítíma af þeim sökum.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?