Félagar í LSS samþykkja verkfallsboðun

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn bætast nú í hóp aðildarfélaga BSRB sem boðað hafa verkföll.

Mikill meirihluti félagsmanna í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) samþykkti boðun verkfallsaðgerða í atkvæðagreiðslu sem fram fór dagana 18. til 21. febrúar.

Alls samþykktu 79,9 prósent þeirra sem greiddu atkvæði verkfallsboðunina. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var afar góð, en um 68,4 prósent þeirra sem voru á kjörskrá greiddu atkvæði. Aðgerðir LSS beinast bæði að ríkinu og sveitarfélögum í landinu og hefjast þriðjudaginn 10. mars.

Aðgerðirnar verða tímasettar samhliða aðgerðum annarra aðildarfélaga BSRB sem boðað hafa til verkfallsaðgerða frá 9. mars næstkomandi. Alls hafa nú sextán aðildarfélög bandalagsins tilkynnt viðsemjendum um umfangsmiklar verkfallsaðgerðir sem ná munu hámarki með ótímabundnu allsherjarverkfalli þann 15. apríl næstkomandi, takist samningar ekki fyrir þann tíma.

Boðuðum aðgerðum má skipta í tvo flokka. Í fyrsta lagi mun þorri félagsmanna hjá ríkinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg leggja niður störf á ákveðnum dögum. Þessi hópur mun leggja niður störf dagana 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. og 26. mars og 31. mars og 1. apríl. Félagar í LSS munu leggja niður störf dagana 10. mars, 18. mars, 26. mars og 1. apríl.

Í öðru lagi munu smærri hópar félagsmanna ákveðinna aðildarfélaga verða í ótímabundnu verkfalli frá og með 9. mars. Í þeim hópi eru meðal annars starfsmenn í grunnskólum og leiðbeinendur á frístundaheimilum á nær öllu höfuðborgarsvæðinu auk Akraness auk starfsmanna hjá Skattinum og sýslumannsembættum um allt land.

Ótímabundið allsherjarverkfall 15. apríl

Þessar aðgerðir munu halda áfram fram í dymbilviku, en hafi samningar ekki tekist fyrir 15. apríl munu félagsmenn sextán aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum fara í ótímabundið allsherjarverkfall þar til samningar hafa tekist.

Félagsmenn í eftirtöldum félögum hafa samþykkt boðun verkfalls:

  • Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
  • Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
  • FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu
  • Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
  • Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
  • Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu
  • Sjúkraliðafélag Íslands
  • Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu
  • Starfsmannafélag Fjallabyggðar
  • Starfsmannafélag Fjarðabyggðar
  • Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
  • Starfsmannafélag Húsavíkur
  • Starfsmannafélag Kópavogs
  • Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
  • Starfsmannafélag Suðurnesja
  • Starfsmannafélag Vestmannaeyja

Þrjú félög til viðbótar; Landssamband lögreglumanna, Tollvarðafélag Íslands og Félag starfsmanna stjórnarráðsins, hafa lýst yfir stuðningi við aðgerðirnar, en félagsmenn þeirra hafa ekki verkfallsrétt og munu félögin því ekki boða til sambærilegra aðgerða. Þá styðja fangaverðir, sem eru í Sameyki en hafa ekki verkfallsrétt, aðgerðirnar þó þeir verði að standa utan við þær.

Félögin hafa verið kjarasamningslaus frá 1. apríl 2019, eða í tæplega ellefu mánuði. Kjarasamningsviðræður munu halda áfram samhliða undirbúningi verkfallsaðgerða hjá aðildarfélögum BSRB.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?