BSRB heldur málþing trúnaðarmanna fimmtudaginn 3. september á Hilton Reykjavík. Þar koma trúnaðarmenn saman til að hlýða á fræðslufyrirlestra og deila reynslu af sínum mikilvægu störfum sem trúnaðarmenn vinnustaða.
Trúnaðarmenn gegna lykilhlutverki á vinnumarkaði. Þeir standa vörð um réttindi samstarfsfólks, miðla upplýsingum og eru mikilvægur tengiliður milli starfsfólks, stéttarfélaga og stjórnenda.
Dagskráin er byggð á niðurstöðum fræðslugreiningar sem 50 trúnaðarmenn frá öllu aðildarfélögum BSRB unnu á sérstakri vinnustofu sem fram fór í húsnæði BSRB. Á málþinginu verður fjallað um áhrif gervigreindar og tæknibreytinga á störf, lestur og túlkun kjarasamninga, góða vinnustaðamenningu, hinseginleika og sálfélagslegt öryggi trúnaðarmanna. Þá munu trúnaðarmenn deila reynslu sinni og segja frá því hvað skiptir máli í þeirra starfi.
Málþingið stendur frá kl. 10 til 17 á Hilton Reykjavík og er skipulagt af Fræðslunefnd BSRB.
Fundarstjóri er Bjarni Snæbjörnsson
Dagskrá
9:30 Skráning og morgunverður
10:00 – 10:30 – Salur HI
- Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB
- Karl Rúnar Þórsson formaður fræðslunefndar BSRB
- Kristbjörgu H. Guðmundsdóttur trúnaðarmaður hjá Landhelgisgæslu Íslands
- Kolbrún Ylfa Gissurardóttir trúnaðarmaður slysa- og bráðalegudeildar á Heilbrigðisstofnun Suðurland
10:30 - 11:30 - Málstofur
Gervigreind – áhrif á vinnumarkað – Salur F
Gervigreind og áhrif á vinnandi fólk – hugleiðingar um vinnuvernd, kjarasamninga og framtíð starfa
Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Lögfræðingur ASÍ
Gervigreind og störfin okkar: Hvað vitum við núna?
Hafsteinn Einarsson – dósent í tölvunarfræði við HÍ
Lestur og túlkun kjarasamninga – Salur G
Dagný Aradóttir Pind lögfræðingur BSRB
Hvernig búum við til góða vinnustaðamenningu? – Salur HI
Heilbrigð vinnustaðamenning – hvað þarf til?
Sigrún Birna Björnsdóttir sérfræðingur í vinnuumhverfis‑ og jafnréttismálum hjá Kennarasambandi Íslands
Er starfsfólk í almannaþjónustu ánægt í starfi?
Dr. Tómas Bjarnson hjá Gallup
11:30 – 12:30 Hádegismatur
12:30 - 13:00 - Erindi – salur HI
Hinseginleiki og vinnumarkaðurinn
Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ´78
13:00 – 13:30
Óvægin umræða og áreitni í garð opinberra starfsmanna
Þóra Bjarnadóttir lögfræðingur hjá Minjastofnun Íslands og MPA í opinberri stjórnsýslu
13:30 – 14:00
Sálrænt öryggi í hlutverki trúnaðarmannsins
Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur
14:00 – 14:30 Kaffipása
14:30 – 15:30 Vinnustofur
Gervigreind: Samtal um gervigreind – Salur F
Jana Eir Víglundsdóttir hagfræðingur BSRB
Lestur og túlkun kjarasamninga – Salur G
Dagný Aradóttir Pind lögfræðingur BSRB
Hvernig búum við til góða vinnustaðamenningu?
Dr. Sigrún Gunnarsdóttir prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og ráðgjafi Vinnueftirlits ríkisins
Góð framkvæmd vaktavinnu
Lára María Valgerðardóttir verkefnastjóri og varaformaður Sjúkraliðafélags Íslands og Sigdís Þóra Sigþórsdóttir sérfræðingur í kjaradeild Sameykis
15:30 – 16:00 - Samantekt
16:00 – 17: 00 - Léttar veitingar