Góð starfsskilyrði og næg mönnun forsenda sjálfbærni sveitarfélaga

BSRB leggur áherslu á að starfsaðstæður, starfsánægja og næg mönnun séu lykilþættir í sjálfbærri þróun sveitarfélaga. Bandalagið varar við því að draga ályktanir af veikindahlutfalli og starfsmannaveltu án þess að horfa til vinnuaðstæðna og álags á starfsfólk. Þetta kemur fram í umsögn BSRB um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga.

Í umsögninni tekur BSRB undir mikilvægi þess að sjálfbærni sveitarfélaga byggist á jafnvægi milli efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta. Bandalagið leggur þó sérstaka áherslu á að sjónarmið starfsfólks sveitarfélaga fái aukið vægi við mótun og innleiðingu sjálfbærniviðmiða.

Stór hluti félagsfólks BSRB starfar hjá sveitarfélögum við mikilvæga grunnþjónustu sem hefur afgerandi áhrif á lífsgæði og velferð íbúa. Starfsfólkið er mikilvægasta auðlind almannaþjónustunnar og því nauðsynlegt að huga að starfsaðstæðum þess þegar sjálfbærni sveitarfélaga er metin.

 

Veikindahlutfall segir ekki alla söguna

Í tillögum að sjálfbærniviðmiðum sveitarfélaga eru meðal annars lagðir til mælikvarðar á starfsmannaveltu og veikindahlutfall. BSRB telur jákvætt að fylgst sé með þessum þáttum en varar við því að þeir séu skoðaðir án samhengis við starfsaðstæður og álag.

Í umsögninni er bent á að starfsfólk almannaþjónustunnar sinni oft líkamlega, andlega og tilfinningalega krefjandi störfum. Rannsóknir sýni skýr tengsl milli álags í starfi og veikinda.

Samkvæmt rannsókn Félagsvísindastofnunar frá árinu 2022 röktu 39% þeirra sem höfðu verið frá vinnu í tvo mánuði eða lengur veikindi sín til vinnunnar. Þá sögðust 48% starfsfólks sveitarfélaga oft eða alltaf vera andlega úrvinda eftir vinnudaginn.

BSRB bendir einnig á mikilvægi þess að bæta starfskjör og leiðrétta kerfisbundið vanmat á störfum kvennastétta, sem margar hverjar sinna sérstaklega krefjandi störfum í almannaþjónustunni.

 

Vill mæla starfsánægju og álag

BSRB leggur til að sjálfbærniviðmið sveitarfélaga taki einnig til starfsánægju, vinnuálags og starfsaðstæðna.

Bandalagið bendir á að hægt sé að nýta niðurstöður kannana á borð við Stofnun ársins og Sveitarfélag ársins, þar sem meðal annars er lagt mat á stjórnun, starfsanda, launakjör og vinnuskilyrði. Með því megi fá heildstæðari mynd af stöðu starfsfólks og bera saman þróun milli ára.

 

Skýr mönnunarviðmið í grunnþjónustu

BSRB kallar jafnframt eftir því að skilgreind verði skýr mönnunarviðmið í mikilvægustu grunnþjónustu sveitarfélaga, meðal annars í þjónustu við börn, fatlað fólk og aldraða.

Víða sé undirmönnun viðvarandi vandamál sem auki álag á starfsfólk og dragi úr gæðum þjónustunnar. Með skýrum mönnunarviðmiðum væri hægt að meta hvort sveitarfélög hafi nægilegt starfsfólk til að sinna lögbundinni og nauðsynlegri þjónustu.

Að lokum leggur BSRB áherslu á að jafnrétti, jöfn tækifæri og inngilding verði hluti af sjálfbærnimati sveitarfélaga og að mótaðir verði skýrir mælikvarðar á þeim sviðum.

Sjálfbærni sveitarfélaga snýst ekki eingöngu um rekstur og fjárhag heldur einnig um að tryggja öfluga almannaþjónustu og góðar starfsaðstæður þeirra sem veita hana.

 

Lesa umsögn BSRB í heild sinni