Umsögn BSRB um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga
BSRB hefur tekið til umsagnar umræðuskjal um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga sem birt var í Samráðsgátt stjórnvalda 9. október sl. BSRB tekur undir mikilvægi þess að skilgreina sjálfbærni með því að líta til jafnvægis og samspils efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta og að allar þrjár stoðirnar séu nægilega sterkar til lengri tíma litið.
Bandalagið vill fyrst og fremst koma á framfæri sjónarmiðum sem varða starfsfólk sveitarfélaga, en stór hluti félagsfólks BSRB starfar hjá sveitarfélögum við mikilvæga grunnþjónustu sem hefur gríðarlega mikla þýðingu og áhrif á lífsgæði og velferð íbúa um allt land. Í skjalinu er sjálfbærni sveitarfélaga skilgreind út frá fimm þáttum; aðgerða- og þróunargeta, hagkvæmni og skilvirkni, þjónustubolmagn, faglegt bolmagn og aðlögunar- og breytingargeta. Allir þessir þættir hafa snertingu við starfsfólk sveitarfélaga og mikilvægt er að þeirra sjónarhorn sé haft í huga við innleiðingu stefnumótunar um sjálfbærni. Eitt meginhlutverk BSRB er að standa vörð um sterka almannaþjónustu sem þjónar þörfum samfélagsins á hverjum tíma og er aðgengileg öllum og starfsfólkið er mikilvægasta auðlind almannaþjónustunnar.
Í skjalinu eru settir fram 30 mælikvarðar og viðmið sem gefa til kynna hvort sveitarfélag hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma. Í kafla 4.5 er fjallað um styrk stjórnsýslu og mælikvarðarnir sem lagðir eru til eru m.a. starfsmannavelta og veikindahlutfall og tekið fram að þessir þættir geti gefið vísbendingar um stöðugleika, starfsánægju og álag í starfsemi sveitarfélagsins. Að mati BSRB er jákvætt að sveitarfélög fylgist með þessum mælikvörðum en mikilvægt er að nota þá rétt og horfa einnig til annarra þátta. Undanfarið hefur verið mikil umræða um veikindahlutfall meðal opinberra starfsmanna og þar hefur borið á töluverðri vanþekkingu. Staðreyndin er sú að starfsfólk í almannaþjónustu sinnir margt afar erfiðum störfum sem gera miklar kröfur til þeirra, líkamlega, andlega og tilfinningalega.
Sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að mikil tengsl eru á milli álags í starfi og veikinda, bæði hér á Íslandi og erlendis. Það má nefna rannsókn Félagsvísindastofnunar frá 2022 um einkenni starfa, vinnuumhverfi og ástæður brotthvarfs af íslenskum vinnumarkaði, en þar kom m.a. fram að 39% þeirra sem verið höfðu frá vinnu í tvo mánuði eða lengur í núverandi starfi röktu veikindin til vinnunnar. Sláandi er að 48% starfsfólks sveitarfélaga er oft eða alltaf andlega úrvinda eftir vinnudaginn. Þá var gerð stór rannsókn 2025 á vinnuheilsu kvenna í Noregi og kemur fram í henni að kvennastéttir í leikskólum, heilbrigðisþjónustu og umönnunarstörfum starfi við sérstaklega líkamlega og andlega krefjandi aðstæður. Til dæmis eru 62% kvenna sem starfa á leikskólum líkamlega úrvinda eftir vinnu. Vinnumarkaður á Íslandi er mjög sambærilegur þeim norska, hann er kynskiptur og konur starfa að stórum hluta í opinbera geiranum. Í þessum rannsóknum, og fjölmörgum fleiri, kemur fram hversu miklu máli starfsaðstæður og starfsumhverfi skipta þegar kemur að því að auka heilsu í vinnu og sporna gegn veikindum. Verndandi og heilsuaukandi þættir eru t.d. sjálfstæði og stjórn á eigin starfi, starfsþróun, félagslegur stuðningur og stuðningur stjórnanda. Starfskjör skipta einnig máli og BSRB hefur lengi barist fyrir því að vanmat á störfum kvennastétta verði leiðrétt. BSRB varar því við því að dregnar séu ályktanir af veikindahlutfalli og starfsmannaveltu án þess að skoðað sé hvað er þar á bak við og að höfuðáhersla sé lögð á að bæta kjör og starfsaðstæður starfsfólks sveitarfélaga, ekki síst kvennastétta.
BSRB leggur til að bætt verði við mælikvarða um starfsánægju starfsfólks og helstu þætti sem snúa að álagi og starfsaðstæðum. Nýta mætti gögn úr könnunum Stofnun ársins og Sveitarfélag ársins, sem gerð er í samstarfi sveitarfélaga og stéttarfélaga starfsfólks. Niðurstöður gefa skýra mynd af frammistöðu vinnustaða þegar kemur að stjórnun, starfsanda, launakjörum og vinnuskilyrðum. Könnunin er gerð árlega og því auðvelt að bera saman gögn á milli ára. Þá er einnig vitað að einstök sveitarfélög gera reglulega kannanir meðal síns starfsfólks og einnig mætti horfa til þeirra niðurstaðna.
Þá kallar BSRB eftir því að skilgreind verði skýr mönnunarviðmið í mikilvægustu grunnþjónustu sveitarfélaga, líkt og í þjónustu við börn, fatlað fólk og aldraða. Almennt eru slík viðmið ekki til staðar og starfsfólk og stofnanir mjög víða búa við undirmönnun sem veldur auknu álagi og dregur úr gæðum þjónustu. Þegar slík viðmið hafa verið skilgreind væri æskilegt að bæta við mælikvarða um það hvort mönnunarviðmiðum sé náð.
Að lokum tekur BSRB undir að æskilegt sé að fylgjast með og efla jafnrétti, jöfn tækifæri og inngildingu, líkt og nefnt er í kafla 4.7. BSRB hvetur til þess að mælikvarðar verði útfærðir varðandi þá þætti og að sveitarfélög leggi áherslu á sjónarmið jafnréttis og inngildingar í allri stefnumótun.
Fyrir hönd BSRB
Dagný Aradóttir Pind
lögfræðingur