Vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar verður kynnt föstudaginn 13. júní, kl. 9:00 í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni 21 - 4.hæð
Kjaratölfræðinefnd er samstarfsvettvangur um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag sem BSRB tekur þátt í.
Í skýrslunni er umfjöllun um launaþróun á almennum og opinberum vinnumarkaði og kjarasamninga sem gerðir hafa verið í yfirstandandi kjarasamningslotu. Þar er einnig að finna umfjöllun um:
- Launastig
- Samsetningu launa og launadreifingu árið 2024
- Íslenskan vinnumarkað, þróun efnahagsmála og kaupmáttarþróun.
Um Kjaratölfræðinefnd
Kjaratölfræðinefnd er samstarfsnefnd ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka á vinnumarkaði um gerð og hagnýtingu talnaefnis um laun og efnahag til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, forsætisráðuneyti, félags- og vinnumálamálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og Hagstofu Íslands.
Fjölmiðlum, forystufólki og starfsfólki sem aðild eiga að nefndinni er boðið til kynningarinnar.
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA munu ávarpa fundinn auk þess sem Hrafnhildur Arnkelsdóttir formaður KTN og Arnaldur Sölvi Kristjánsson sérfræðingur nefndarinnar fara yfir helstu niðurstöður skýrslunnar. Einnig verður streymt frá viðburðinum á vef Kjaratölfræðinefndar.