Landsfundur bæjarstarfsmannafélaga

Landsfundur bæjarstarfsmannafélaga 2022 var haldinn á Hótel Laugarbakka dagana 9. til 11. nóvember.

Þátttakendur á fundinum voru formenn félaga ásamt fulltrúum stjórnar- og samninganefnda félaganna.

Meginefni fundarins var undirbúningur félaganna í aðdraganda kjaraviðræðna auk þess að ræða sameiginleg málefni á borð við fræðslumál og sjóði.

Heiður Margrét Björnsdóttir, hagfræðingur BSRB hélt erindi um efnahagsmál í aðdraganda kjarasamninga. Að því loknu var efnt til umræðna um stöðuna á vinnumarkaði og fulltrúar félaganna ræddu kröfugerðir sínar og væntingar til samstarfs og fyrirkomulags í komandi kjaraviðræðum.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?