Morgunverðarfundur um barnabætur á Íslandi

Ný skýrsla um barnabótakerfið verður kynnt á fundinum.

BSRB stendur fyrir morgunverðarfundi um barnabætur á Íslandi miðvikudaginn 4. desember næstkomandi. Þar mun Kolbeinn Stefánsson, doktor í félagsfræði, kynna nýja skýrslu um barnabótakerfið á Íslandi sem hann vann fyrir BSRB.

Fundurinn verður haldinn í Hvammi á Grand hótel. Boðið verður upp á morgunverð frá klukkan 8 en fundurinn hefst klukkan 8:30 og lýkur ekki seinna en klukkan 10. Aðgangur að fundinum er ókeypis.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mun opna fundinn með stuttu ávarpi áður en Kolbeinn kynnir niðurstöður skýrslunnar. Að kynningu lokinni verða umræður um efni hennar.

Fundarstjóri verður Magnús Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri BSRB.

Við hvetjum alla sem eiga tök á því að mæta til að mæta og fræðast um barnabótakerfið. Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði sem stofnaður hefur verið fyrir fundinn og þar má einnig skrá sig til þátttöku.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?