Í tilefni af 8. mars standa ASÍ, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands fyrir morgunverðarfundi um ofbeldi í nánum samböndum og vinnumarkaðinn
Ofbeldi í nánum samböndum eru algeng og alvarleg brot sem hafa margþættar afleiðingar fyrir brotaþola og samfélagið allt. Þrátt fyrir mikla umræðu um kynbundið ofbeldi hefur samhengið á milli vinnumarkaðar og ofbeldis í nánum samböndum ekki fengið athygli hér á landi.
Síðustu ár hefur verið töluverð þróun erlendis sem snýr að því að veita þolendum ýmis réttindi á vinnumarkaði, svo sem launað leyfi og vernd frá uppsögnum. Dæmi eru um fyrirtæki hér á landi sem hafa slíkar stefnur, en hér er engin löggjöf eða ákvæði í kjarasamningum sem taka á málinu.
Á málþinginu verður fjallað um eðli og birtingarmyndir ofbeldis í nánum samböndum og hversu mikilvægt er að vinnumarkaðurinn beini sjónum sínum að málefninu. Þá verður fjallað um alþjóðlega þróun og um hvað stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins og einstakir vinnustaðir hér á landi geta gert til þess að styðja við þolendur ofbeldis í nánum samböndum.
Dagskrá:
Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, fjallar um ofbeldi í nánum samböndum og birtingarmyndir þess.
Dagný Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB, fjallar um alþjóðlega þróun, löggjöf og kjarasamninga og hvaða aðgerða er þörf á að grípa til hér á landi.
Á eftir erindum verður pallborð með Lindu, Dagnýju og Adriönu Karolinu Pétursdóttur, formanni Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi og framkvæmdastjóra mannauðs Rio Tinto á Íslandi.
Jenný Kristín Valberg, teymisstýra í Bjarkarhlíð, stýrir málþinginu.
Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 9:00 og dagskrá hefst 9:15