Miklum breytingum á vinnumarkaði er spáð á næstu árum, meðal annars vegna aukinnar tækniþróunar og tilkomu gervigreindar. Samhliða eru loftslagsbreytingar og aðgerðir tengdar loftslagsmálum einnig líklegar til að hafa áhrif á störf og starfsumhverfi.
Í nýrri skýrslu Vörðu – Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins kemur fram að 23% launafólks innan aðildarfélaga ASÍ og BSRB telji að starf sitt hafi breyst eða muni breytast vegna nýrrar tækni eða loftslagsbreytinga. Þegar sjónum er beint að þeim sem eru í störfum sem hafa breyst eða eru líkleg til að breytast, sýna niðurstöðurnar að áhrifin dreifast ójafnt og að sumir hópar standi verr að vígi en aðrir.
Áhyggjur af starfsöryggi mestar meðal innflytjenda og tekjulægri hópa
36% þeirra sem eru í störfum sem hafa tekið breytingum eða eru líkleg til að taka breytingum segjast hafa áhyggjur af starfsöryggi sínu vegna þróunarinnar. Slíkar áhyggjur eru umtalsvert algengari meðal innflytjenda og fólks með lægri atvinnutekjur. Jafnframt telja færri í þessum hópum að þau geti sinnt núverandi starfi – eða öðru starfi á sama vinnustað – með endurmenntun eða aukinni færni.
Aukið álag á vinnustöðum
Niðurstöðurnar benda einnig til þess að breytingarnar geti haft áhrif á vinnuálag. 44% þeirra sem telja starf sitt hafa breyst eða muni breytast segjast mjög eða frekar sammála því að álag í starfi hafi aukist í kjölfar nýrrar tækni eða loftslagsbreytinga. Hlutfallið er hærra meðal innflytjenda (56%) en innfæddra (39%) og kemur fram í ákveðnum starfsgreinum, meðal annars í matvælaframleiðslu (56%), menningu- og skapandi greinum (51%) og leikskólum (50%).
Meirihluti telur tæknibreytingar geta auðveldað störf – en ekki allir
Þrátt fyrir áskoranir telja margir að breytingar geti líka falið í sér tækifæri. 63% þeirra sem hafa orðið varir við áhrif tækni- eða loftslagsbreytinga (eða telja sig verða fyrir þeim á næstu árum) telja að tæknibreytingar muni auðvelda þeim starfið. Fólk með hærri atvinnutekjur er líklegra til að sjá slík jákvæð áhrif en tekjulægri hópar. Þá er fólk sem starfar í leikskólum og ræstingum ólíklegra til að telja að tæknibreytingar muni auðvelda störf þeirra.
Þjálfun og endurmenntun ekki tryggð fyrir alla
Þau sem töldu að loftslags- eða tæknibreytingar hefðu haft (eða myndu hafa) áhrif á starf sitt voru spurð hvort þau hefðu fengið viðeigandi þjálfun eða endurmenntun þegar ný tækni eða breytingar væru innleiddar. 55% voru mjög eða frekar sammála því – sem þýðir að nær helmingur upplifir að stuðningurinn sé ekki nægilegur.
Um rannsóknina
Varða leggur árlega fyrir könnun meðal launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Þetta er fimmta árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og fjöldi svara hefur aldrei verið meiri, en tæplega 25.000 svör bárust að þessu sinni.