Námskeið um lífeyrismál við starfslok

Námskeiðunum verður skipt eftir deildum.

Boðið verður upp á námskeið um lífeyrismál við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs, Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar miðvikudaginn 17. október næstkomandi.

Námskeiðin verða haldin í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42, 2. hæð. Þar verður farið almennt yfir helstu réttindi sjóðfélaga, sýnt hvar upplýsingar um lífeyrisréttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.

Brú lífeyrissjóður rekur þrjár ólíkar deildir með mismunandi réttindakerfum og er námskeiðinu því skipt upp eftir því.

  • B deild - LsRb - LSK kl. 16:30
  • A deild kl. 17:30
  • V deild kl. 18:30

Hægt er að skrá sig á námskeið hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?