Óalgengt að þolendur áreitni leiti aðstoðar

Nýjar reglur skylda vinnuveitendur til að ganga lengra en áður í að verja starfsmenn fyrir áreitni.

Óalgengt er að þolendur kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni og ofbeldis sem vitað er að þrífst á vinnustöðum leiti sér aðstoðar vegna slíkra mála. Auka þarf umræðu um áreitni í samfélaginu og bæta þekkingu bæði starfsmanna og yfirmanna að mati BSRB.

Gagnkvæm virðing í samskiptum á vinnustað er sjálfsagður réttur alls launafólks. Það hefur í för með sér að starfsmenn eiga að njóta skilyrðislausrar verndar fyrir kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.

Afleiðingar af áreitni og ofbeldi af þessu tagi geta verið ýmiskonar, bæði fyrir einstaklingana sem verða fyrir því, fyrir vinnustaðina og samfélagið í heild. Áhrif á einstaklingana geta til dæmis komið fram í verri heilsu, streitu, þunglyndi, niðurlægingu og pirringi. Þá getu áreitni og ofbeldi haft í för með sér tekjutap fyrir þá sem fyrir því verða.

Nýlega tóku gildi nýjar reglur sem ganga lengra í að verja starfsmenn en áður. Þannig er það til að mynda skylda vinnuveitenda að vernda starfsmenn sína fyrir áreiti af hendi þriðja aðila, til dæmis viðskiptavina. Þá verða vinnuveitendur að bregðast við til að tryggja góða líðan starfsmanna þegar kvartað er yfir áreiti, hvort sem athugun leiðir í ljós að um áreiti hafi verið að ræða eða ekki.

Hægt er að lesa nánari umfjöllun um kynbundna og kynferðislega áreitni hér.

BSRB, ASÍ, BHM, KÍ, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa hafa gefið út bækling þar sem farið er yfir ýmis atriði tengt kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Hægt er að sækja bæklinginn hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?