Opinn veffyrirlestur um ógnir internetsins

Fjallað verður um netöryggi á fyrirlestri á vegum Fræðslusetursins Starfsmenntar.

Ítrekað berast fréttir af fyrirtækjum og einstaklingum sem lenda í því að tölvukerfi og samfélagsmiðlar þeirra eru hakkaðir. Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á stuttan veffyrirlestur um þessar ógnir internetsins með einum helsta sérfræðingi landsins í netöryggismálum.

Hvað þýðir það að einstaklingar og fyrirtæki séu hökkuð? Hvernig gerist það eiginlega? Hvernig er hægt að verjast þessum ógnum? Geta allir lent í svikum og prettum á netinu? Þessum spurningum og fleirum ætlar Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, að svara á veffyrirlestri miðvikudaginn 24. nóvember frá 9:00 til 9:45.

Í samfélagi þar sem tölvur og netið eru að verða sífellt stærri partur af lífi fólks skiptir miklu máli að geta varið sig gegn svikum og prettum af ýmsu tagi. Í erindi sínu ætlar Valdimar að fjalla almennt um hvernig hakkarar vinna, hvernig hægt er að vera á varðbergi og hvaða tól við getum notað til að auka stafrænt öryggi okkar.

Valdimar er framkvæmdastjóri Syndis, netöryggisfyrirtæki sem hefur það að markmiði að gera fyrirtæki og stofnanir betur meðvitaðar um netöryggi með því að gefa innsýn í hvernig hakkarar standa að netárásum. Hann starfaði erlendis í 15 ár, síðustu árin sem öryggisstjóri hjá alþjóðlegum fyrirtækjum en allan tímann var starfið tengt upplýsingaöryggi. Valdimar er með MSc. í upplýsingaöryggi.

Erindið er hluti af fyrirlestraröð um almenna stafræna hæfni í tilefni af 20 ára afmæli Starfsmenntar. Þátttaka er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig á vef Starfsmenntar til að fylgjast með fyrirlestrinum.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?