Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir Genfarskólann 2027

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Genfarskólann 2027 og umsóknarfrestur er til 18. desember. Þetta er einstakt tækifæri fyrir virka félagsmenn í stéttarfélögum, starfsfólk þeirra og kjörna fulltrúa til að dýpka þekkingu sína á alþjóðamálum verkalýðshreyfingarinnar og fá innsýn í starf Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO).

 

Hvað er Genfarskólinn?

Genfarskólinn (Geneva School) hefur verið haldinn allt frá árinu 1931 í tengslum við árlegt þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) í Genf til að fræða þátttakendur um störf ILO, alþjóðlegan vinnurétt og réttindi starfsmanna. Markmið námskeiðsins er að styrkja þekkingu á hlutverki ILO og alþjóðasamningum sem vernda starfsmannaréttindi, og stuðla að betri kjörum og vinnuaðstæðum um allan heim í gegnum samvinnu á alþjóðavettvangi. Genfarskólinn hefur þannig gegnt mikilvægu hlutverki í að fræða og efla leiðtoga verkalýðshreyfinga á heimsvísu.

Skipulag námsins Námið fer fram í þremur lotum og er gerð krafa um þátttöku í þeim öllum.

1. Fornámskeið í Runö, Svíþjóð: 21.-25. apríl
2. Hópverkefni og fjarnámsfundir á vorönn
3. Aðalnámskeið í Genf á ILO ráðstefnunni í júní (u.þ.b. 18 daga nám, nákvæmar dagsetningar tilkynntar síðar) Námið er í formi fyrirlestra, fjarnáms, hópastarfs og þátttakendur fylgjast með fundum Alþjóðavinnumálaþingsins. Gott vald á einu norðurlandamáli (norsku, dönsku, sænsku) og góð enskukunnátta eru nauðsynleg fyrir þátttakendur. Ísland á tvö föst sæti í Genfarskólanum, eitt fyrir fulltrúa ASÍ og annað fyrir fulltrúa BSRB. Umsækjendur eru valdir með tilliti til fyrri reynslu og þekkingar á verkalýðsmálum. Kynningarfundir fyrir þátttakendur verða haldnir í mars þar sem farið verður nánar yfir fyrirkomulag.

 

Kostnaður

  • Námskeiðsgjöld, gisting og flugfargjöld eru greidd fyrir þátttakendur.
    Innifalið í námskeiðsgjaldinu er:
    • Runö: gisting í einstaklingsherbergi í Runö ásamt fæði.
    • Genf: gisting í sameiginlegu tveggja manna herbergi (með öðrum þátttakanda) með einföldu morgunverðarboði á meðan dvöl stendur yfir í Genf.

 

sækja um

Umsóknarfrestur: 18. desember

Heimasíða skólans