BSRB varar við að vegið verði að grunnstoðum lífeyriskerfisins

BSRB leggst gegn áformum um að leggja niður SL lífeyrissjóð, (áður Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda) og sameina hann Almenna Lífsverk. Með sameiningunni yrði stærri hluti skyldubundinna lífeyrisiðgjalda færður úr samtryggingu yfir í einstaklingsbundna séreign, en hjá Almenna Lífsverk rennur tæplega helmingur iðgjaldsins í séreign.

BSRB telur að slík breyting gangi gegn þeirri stefnu sem aðilar vinnumarkaðarins hafa mótað um að samtrygging sé ein af meginstoðum íslenska lífeyriskerfisins. Íslenska lífeyriskerfið byggi á skylduaðild, sjóðssöfnun og samtryggingu. Með því fyrirkomulagi sé markmiðið að tryggja launafólki ævilanga afkomu og sameiginlega tryggingavernd, án þess að leggja óhóflegar byrðar á ríkissjóð eða komandi kynslóðir.

Þetta kemur fram í umsögn BSRB um drög að frumvarpi sem felur í sér að lög um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda verði felld úr gildi til að hægt verði að sameina sjóðinn Almenna Lífsverk. Bandalagið varar við því að slík stefnubreyting í lífeyrismálum geti haft afdrifaríkar þjóðhagslegar afleiðingar til lengri tíma.

 

Lesa umsögn BSRB í heild sinni