Hvaða reglur gilda þegar opinberar stofnanir og sveitarfélög gera breytingar á skipulagi og segja upp starfsfólki? Þetta var meðal þess sem rætt var á fræðslufundi réttindanefndar BSRB þann 19. nóvember.
Á fundinum var fjallað um réttindi starfsfólks við skipulagsbreytingar hjá hinu opinbera, hvaða skyldur hvíla á atvinnurekendum og hvað þarf að hafa í huga þegar breytingar leiða til uppsagna.
Gísli Guðni Hall hæstaréttarlögmaður fór yfir þær reglur sem gilda um skipulagsbreytingar og uppsagnir hjá hinu opinbera. Hann fjallaði meðal annars um hvernig dómstólar hafa túlkað reglurnar og hvaða kröfur eru gerðar til undirbúnings og ákvarðana stjórnvalda.
Fram kom að opinberir atvinnurekendur hafa almennt töluvert svigrúm til að ákveða hvaða störf eru lögð niður og hvaða starfsfólki er sagt upp vegna skipulagsbreytinga, svo framarlega sem rétt er staðið að undirbúningi og málsmeðferð. Því getur verið erfitt að fá slíkum ákvörðunum hnekkt. Þó sé full ástæða til þess að vera á varðbergi þegar skipulagsbreytingar eru sagðar ástæður uppsagna.
Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg til umfjöllunar
Ívar Örn Ívarsson, lögfræðingur hjá Sameyki, fjallaði um reynslu félagsins af skipulagsbreytingum, meðal annars í tengslum við uppsagnir hjá Reykjavíkurborg á undanförnum mánuðum. Stór hluti þeirra sem þar hefur verið sagt upp er félagsfólk Sameykis.
Ívar fór yfir raunveruleg dæmi úr málum sem Sameyki hefur haft til meðferðar og þau álitaefni sem hafa komið upp. Hann fjallaði einnig um álit umboðsmanns Alþingis sem snúa að niðurlagningu starfa, mati á hæfni starfsfólks og þeim reglum sem stjórnvöld þurfa að fylgja við skipulagsbreytingar.
Fræðslufundurinn var haldinn á vegum réttindanefndar BSRB, sem fjallar um ágreiningsmál er varða réttindi og hagsmuni félagsfólks innan bandalagsins. Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður nefndarinnar, og Hrannar Már Gunnarsson, starfsmaður nefndarinnar, höfðu umsjón með fundinum.