Í tilefni af degi gegn einelti 8. nóvember gaf Vinnueftirlitið út nýtt fræðslumyndband um einelti á vinnustöðum ásamt stoðefni, í samstarfi við samtök aðila vinnumarkaðarins, Jafnréttisstofu og Embætti landlæknis.
Í myndbandinu er fjallað um hvað einelti á vinnustað er og hvernig það getur birst með ólíkum hætti í vinnuumhverfinu. Einnig er fjallað um hvernig einelti getur átt rætur í skipulagi, stjórnun og samskiptum og hvað vinnustaðir geta gert til að draga úr líkum á slíkri hegðun.
Með myndbandinu fylgir gátlistinn Grípum snemma inn í neikvæð samskipti og spurningakönnunin: Hvað veist þúi um einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum?
BSRB fagnar þessu mikilvæga framtaki Vinnueftirlitsins og hvetur aðildarfélög sín og aðra vinnustaði til að kynna sér efnið og nýta það til að tryggja öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi fyrir allt starfsfólk.
Hér má sjá nýja fræðslumyndbandið um einelti á vinnustöðum
Kynntu þér verkefnið á síðu Vinnueftirlitsins