Í Morgunblaðinu í morgun birtist uppsagnabréf, stílað á Daða má Kristófersson fjármálaráðherra.
Uppsagnarbréfið er hluti af herferð BSRB, Kennarasambands Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga gegn áformum Daða Más og ríkisstjórnarinnar um að afnema áminningarskyldu ríkisstarfsmanna.
Afnám áminningarskyldu felur í sér eina stærstu réttingaskerðingu sem ráðist hefur verið í gagnvart opinberu starfsfólki og myndi að mati heildarsamtakanna auka verulega líkur á ósanngjörnum og tilhæfulausum uppsögnum.
BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands krefjast þess að áformin verði dregin til baka.
Höfnum skerðingu réttinda opinbers starfsfólks!
Kynntu þér málið á góðáminning.is