Sameinað stéttarfélag fékk nafnið Sameyki

Aðalfundur félaganna á laugardag samþykkti tillögu að nýju nafni félagsins.

Tvö aðildarfélaga BSRB sameinuðust formlega á aðalfundum félaganna sem haldnir voru á laugardag. SFR stéttarfélag í almannaþágu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar voru sameinuð undir nafninu Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu og er nú þriðja stærsta stéttarfélag landsins.

Ákvörðun um sameininguna lá fyrir að lokinni allsherjaratkvæðagreiðslu í byrjun nóvember en á aðalfundum félaganna á laugardag voru ný lög og heiti sameinaðs félags samþykkt. Höfuðmarkmið sameiningarinnar er að verða enn sterkari í kjara- og hagsmunabaráttunni og auka þjónustu við félagsmenn. Formaður Sameykis stéttarfélags er Árni Stefán Jónsson, áður formaður SFR, og varaformaður er Garðar Hilmarsson, áður formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

Eftir sameiningu eru félagsmenn um ellefu þúsund og starfa við almannaþjónustu hjá ríki, borg, sveitarfélögum og fyrirtækjum í meirihlutaeigu opinberra aðila. Sameyki stéttarfélag er því langfjölmennasta stéttarfélagið á opinberum markaði og mun gera kjarasamninga við 18 viðsemjendur. Flestir samninganna eru lausir í lok mars og mun félagið á næstu dögum setja sig í samband við stærstu viðsemjendur.

„Krafan um að vinnandi fólk geti lifað mannsæmandi lífi af launum sínum er grundvallar mannréttindakrafa. Jöfnun launa á milli vinnumarkaða er eitt af okkar mikilvægu málum sem við leggjum ríka áherslu á að verði lokið eins fljótt og auðið er. Auk þess viljum við tryggja að launaþróunartryggingin haldi sér,“ segir í ályktun sem samþykkt var á fundi Sameykis á laugardag.

„Við sem störfum í almannaþjónustu þekkjum best hversu mikilvægt er að hlúa að innviðum velferðarkerfisins og búa þannig um hnútana að það sé tryggt og öllum opið. Starfsmenn í almannaþjónustu hafa búið við mikið álag og stytting vinnuvikunnar er því mikilvæg til þess að koma til móts við vaxandi álag og streitutengda sjúkdóma og mun stytting skipta miklu máli fyrir opinbera starfsmenn. Við fögnum tillögum átakshóps um húsnæðismál sem hefur verið baráttumál lengi en leggjum áherslu á að þeim þurfi að fylgja eftir. Tillögur ASÍ um skattkerfisbreytingar tóna við stefnu BSRB í skattamálum meðal annars um fjölgun skattþrepa og tökum við þeim því fagnandi. Sameyki stéttarfélag óskar þeim félögum sem nú standa í eldlínunni í kjarasamningsviðræðunum góðs gengis og við fylgjumst vel með þróun mála,“ segir ennfremur í ályktuninni.

Lestu meira um sameininguna á vef SFR og vef Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?