Sjálfsögð mannréttindi að hafa aðgang að vatni

Það er til nóg af hreinu vatni á Íslandi sem almenningur hefur greiðan aðgang að, og þannig þarf það að vera áfram.

Þó Íslendingum þyki ekkert eðlilegra en að geta skrúfað frá næsta krana til að fá hreint drykkjarvatn er það ekki staðan víða annarsstaðar í heiminum. BSRB hefur, eins og heildarsamtök launafólks víða um heim, barist fyrir því að óhindrað aðgengi almennings að drykkjarvatni verði flokkað sem sjálfsögð mannréttindi.

Frumskilyrði fyrir því að aðgangur að drykkjarvatni séu eins og hver önnur mannréttindi er að eignarhald á vatni sé samfélagslegt og að nýting þess sé sjálfbær til framtíðar. Þess vegna verður að sporna við þeirri óhugnalegu þróun sem við sjáum víða erlendis þar sem vatn er orðið eins og hver önnur verslunarvara.

Reka verður vatnsveitur á félagslegum grunni þar sem hagsmunir almennings eru í forgrunni. Fyrsta verkefni vatnsveita verður að vera að tryggja almenningi aðgang að nægilegu hreinu vatni til drykkjar, matargerðar og hreinlætis á viðráðanlegu verði. Í stefnu BSRB í umhverfismálum er einnig fjallað um mikilvægi þess að tryggja að allt grunnvatn sé í almannaeigu, ekki bara vatnsveiturnar sem nýta það.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?