Þolendur áreitis og ofbeldis leiti sér aðstoðar

Atvinnurekendum ber skylda til að vernda starfsmenn fyrir áreiti.

Allt of algengt er að þolendur kynbundins áreitis og ofbeldi á vinnustað hiki við að leita sér aðstoðar. Því er mikilvægt að bæta þekkingu starfsmanna og yfirmanna á áreitni og ofbeldi og vinna markvisst í því að fyrirbyggja ofbeldið og bregðast rétt við ef tilvik koma upp.

Eitt af þeim grundvallaratriðum sem verða að vera í lagi á vinnustöðum er að starfsfólkið þarf að upplifa öryggi á vinnustaðnum og á viðburðum tengdum vinnunni. Launafólk á skilyrðislausan rétt á því að búa við gagnkvæma virðingu í samskiptum við yfirmenn og samstarfsfólk. Það þýðir að starfsfólk á rétt til að njóta skilyrðislausrar verndar fyrir kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Ef brotið er á fólki á það að geta leitað til síns yfirmanns til að fá úrlausn sinna mála. Ef það ber ekki árangur getur starfsfólkið leitað til síns stéttarfélags.

Bæði einstaklingar og vinnustaðir geta glímt við ýmiskonar afleiðingar af áreitni og ofbeldi. Einstaklingarnir geta upplifað verri heilsu, streitu, þunglyndi, niðurlægingu og pirring, auk þess sem áreitnin og ofbeldið geta haft í för með sér tekjutap fyrir þolendurna.

Lögin eru skýr þegar kemur að kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi. Atvinnurekendum ber skylda til að vernda starfsmenn fyrir áreiti, hvort sem er af völdum samstarfsmanna, yfirmanna eða utanaðkomandi aðila, svo sem viðskiptavina. Atvinnurekendum ber einnig að bregðast hratt við kvörtunum og tryggja góða líðan þess sem kvartar, hvort sem athugun leiðir í ljós að um áreiti hafi verið að ræða eða ekki.

BSRB, ASÍ, BHM, KÍ, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa hafa gefið út bækling þar sem farið er yfir ýmis atriði tengt kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Hægt er að sækja bæklinginn rafrænt á íslensku, ensku og pólsku.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?