Sjúkraliðafélag Íslands fagnaði 60 ára sögu sinni með pompi og prakt síðustu helgi. Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB fékk þann heiður að ávarpa veislugesti og nýtti tækifærið meðal annars til að þakka sjúkraliðum fyrir samstöðuna, baráttuþrekið og baráttugleðina sem hefur einkennt sögu félagsins og BSRB notið góðs af:
---
Kæru sjúkraliðar, kæru félagar – og kæru afmælisgestir.
Það er mér sannur heiður að standa hér í dag fyrir hönd BSRB til að fagna 60 ára afmæli Sjúkraliðafélags Íslands.
Þetta er virðulegur aldur og við hæfi að staldra aðeins við og líta um öxl.
Sjúkraliðafélag Íslands var stofnað aðeins nokkrum vikum eftir að fyrstu sjúkraliðarnir útskrifuðust og stéttin varð til. Það var ekki seinna vænna, enda beið félagsins hörð barátta fyrir starfsréttindum sjúkraliða og viðurkenningu á stöðu stéttarinnar.
Það var ljóst frá fyrsta degi að samstaða þessarar nýju kvennastéttar væri forsenda þess að hún næði fram réttmætum kröfum sínum. Baráttan fyrir aukinni menntun, viðurkenningu á störfum sjúkraliða og efling stéttarvitundar einkenndi fyrstu árin. Og stór áfangi – eftir mjög harða baráttu- náðist 1991 þegar félagið varð stéttarfélag og sjúkraliðar tóku samningsréttinn í eigin hendur.
Baráttuþrek sjúkraliða í gegnum söguna, bæði fyrir þróun þeirra sem fagstétt og í kjarabaráttu, sýnir ótrúlega seiglu og faglegt stolt. Af því njótum við sannarlega góðs þegar kemur að sameiginlegri baráttu á vettvangi BSRB.
Þegar ég lít yfir söguna fyllist ég þakklæti og stolti yfir þeirri staðreynd að stéttarfélögin sem í dag mynda BSRB, þar með talið Sjúkraliðafélag Íslands, hafi ákveðið að stofna eða ganga til liðs við bandalag og taka höndum saman til að berjast fyrir betra samfélagi. Eins og sagan sýnir er það ekki sjálfgefið að fyrir hendi sé sameinuð rödd félaganna með skýra sýn - og getu til að setja mál á dagskrá, móta umræðuna, bregðast hratt við og bæta lífskjör félagsfólks. Við höfum náð góðum árángri í sameiginlegum baráttumálum eins og endurmati á virði kvennastarfa, heilbrigðara starfsumhverfi og viðunandi mönnun, styttingu vinnuvikunnar, lengra sumarfríi, húsnæðisöryggi eins og með Bjargi íbúðafélagi og auknum stuðningi við barnafjölskyldur svo fátt eitt sé nefnt. Við erum sterkari af því við erum saman – og við erum saman af því að þannig heyrist betur í okkur.
Það er sama hvaða verkefni það eru sem við tökumst á við á vettvangi BSRB – sjúkraliðar eru alltaf fremstir í flokki. Sjúkraliðar kunna þá list að standa þétt saman. Þau bera með sér þá sterku ábyrgðatilfinningu, alúð og umhyggju sem einkennir stéttina – en fyrst og síðast bera þau með sér - og smita frá sér - óbilandi baráttugleði.
Eitt þeirra verkefna sem við fengum nýverið í fangið var að verjast áformum ríkisstjórnarinnar um að skerða réttindi ríkisstarfsmanna með afnámi áminningarskyldunnar. Við í BSRB spyrntum við fótunum af krafti og stóðum m.a. að heilmikilli herferð, Góð áminning, þar sem eitt verkefnanna var að taka myndbandsviðtöl við ríkisstarfsmenn um þeirra sýn á þessi áform. Meðal viðmælenda var Sif Sigmundsdóttir, sjúkraliði á geðgjörgæslu. Viðtalið við hana var einlægt og sterkt og fékk mesta dreifingu allra á samfélagsmiðlunum. Það var augljóst af viðbrögðunum að samfélagið stóð með henni.
Þetta litla dæmi endurspeglar svo skýrt að sjúkraliðar svara alltaf kallinu alveg sama hvert verkefnið er – ekki bara forystan, heldur líka trúnaðarmenn úr þessum stóra og öfluga hópi. Það er ómetanlegt fyrir baráttu okkar fyrir betra samfélagi.
Sjúkraliðar hafa því ekki aðeins verið í lykilhlutverki í gegnum tíðina við að hjúkra okkur fólkinu í landinu, oft á ögurstundu, heldur einnig í að móta lífskjör og starfsumhverfi allra stétta sem starfa í almannaþjónustu.
Nýtum kvöldið til að styrkja böndin og fagna árangrinum – stolt af 60 ára sögunni. Þannig nærum við baráttuandann og komum sterkari saman til leiks í næstu lotu.
Kæru sjúkraliðar,
Innilegar hamingjuóskir með stórafmæli félagsins. Megi Sjúkraliðafélag Íslands vaxa og dafna um ókomna tíð, félagsfólki og samfélaginu öllu til heilla.