SFR og St.Rv. kynna stofnanir ársins 2018

Stjórnendur þeirra stofnana sem best komu út fengu viðurkenningu.

SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar (St.Rv.) kynntu á miðvikudag hvaða stofnanir hlutu titilinn Stofnun ársins 2018 við hátíðlega athöfn á Hilton Nordica.

Sigurvegarar kvöldsins hjá SFR voru Persónuvernd, Ríkisskattstjóri og Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum en hjá St.Rv. voru Norðlingaskóli og Leikskólinn Vallarsel á Akranesi efstir á blaði.

Titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna. Könnun er unnin í góðu samstarfi milli SFR, St.Rv., fjármála- og efnahagsráðuneytisins og VR. Þátttakendur eru spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti.

Hvatning til að gera vel í starfsmannamálum

Könnunin gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. Markmiðið með að velja fyrirmyndarstofnanir er hvatning til stjórnenda að gera vel í starfsmannamálum og að auka umræðu um aðbúnað og líðan starfsmanna á vinnustöðum. Gallup sér um framkvæmd könnunarinnar sem er stærsta reglulega vinnumarkaðskönnun sem framkvæmd er hér á landi og var úrtakið tæplega 50.000 manns.

Hjá SFR stéttarfélagi hljóta eftirfarandi stofnanir titilinn Stofnun ársins:

  • Ríkisskattstjóri er stofnun ársins í flokki stærri stofnana.
  • Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum er stofnun ársins í flokki meðalstórra stofnana.
  • Persónuvernd er stofnun ársins í flokki minni stofnana.

Titilinn Hástökkvari fær sú stofnun sem hækkar sig mest á milli ára. Í ár hlýtur þann titil Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra sem hækkaði sig um 65 sæti í raðeinkunn.

Hjá St.Rv. hljóta eftirfarandi stofnanir titilinn Stofnun ársins:

  • Norðlingaskóli í flokki stærri stofnana.
  • Leikskólinn Vallarsel á Akranesi í flokki minni stofnana.

Hástökkvarinn hjá St.Rv. er Barnavernd Reykjavíkur, en það er stofnunin sem hækkaði mest milli ára, eða um 19 sæti.

SFR stéttarfélag veitir einnig tíu öðrum stofnunum viðurkenningar með því að útnefna þau Fyrirmyndarstofnanir 2018.

  • Fyrirmyndarstofnanir í flokki stærri stofnana eru: Reykjalundur,Vínbúðin ÁTVR, Fjölbrautarskóli Suðurnesja og Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra.
  • Fyrirmyndarstofnanir í flokki meðalstórra stofnana eru Menntaskólinn á Tröllaskaga, Einkaleyfastofan, Samkeppniseftirlitið og Landmælingar Íslands.
  • Fyrirmyndarstofnanir í flokki minni stofnana eru: Hljóðbóksafn Íslands og Úrskurðarnefnd umhverfis - og auðlindamála

St.Rv. veitti Frístundamiðstöðinni Tjörninni og Frístundamiðstöðinni Árseli nafnbótina Fyrirmyndarstofnun.

Heildareinkunn hækkar

Niðurstöður könnunarinnar sýna að heildareinkunn hefur almennt hækkað á undanförnum árum og á það við um kannanir beggja félaga. Starfsfólk minni stofnana er jafnan ánægðara en starfsfólk stærri stofnana, en í ár mælist minni munur milli kynjanna. Af þeim níu þáttum sem mældir eru fengu þættirnir sem mæla mat starfsfólks á sjálfstæði í starfi og sveigjanleiki í vinnu hæsta einkunn hjá SFR en lægsta einkunnin er eins og áður á þættinum sem mælir ánægju með launakjör.

Nánar er fjallað um niðurstöðurnar á vef SFR og á vef Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?