Hvernig er staða hinsegin fólks á íslenskum vinnumarkaði? Hvaða áskoranir blasa enn við og hvaða ávinningur felst í því að skapa vinnustaði þar sem fjölbreytileiki og inngilding eru höfð að leiðarljósi?
Þessum spurningum verður velt upp á opnum fræðslufundi um stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði og mikilvægi hinsegin vottunar. Á fundinum verður fjallað um áskoranir, bakslag og fordóma en jafnframt um leiðir til að stuðla að réttlátara og inngildandi vinnuumhverfi.
Á fundinum flytja tveir fyrirlesarar erindi:
- Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur hjá Visku stéttarfélagi, fjallar um efnahagslega stöðu hinsegin fólks
- Kári Garðarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna '78, kynnir hinsegin vottun og mikilvægi hennar fyrir vinnustaði
Að erindum loknum verður sófaspjall þar sem fulltrúar ólíkra starfsgreina og vinnumarkaðarins ræða reynslu sína og sjónarmið. Þátttakendur í umræðunum eru:
- Sara Dögg Svanhildardóttir, sviðsstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs ASÍ
- Hafþór Óskarsson, grunnskólakennari
- Irma Alexandra, forritari
- Erna Dís Ingólfsdóttir, mannauðsstjóri Íslandshótela
Fundarstjóri er Þorbjörg Þorvaldsdóttir.
Boðið verður upp á léttar veitingar og eru öll hjartanlega velkomin.