Í dag var fyrsti fundur vinnuhóps um fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) nr. 190 um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni. Félagsmálaráðherra skipaði hópinn og situr Dagný Aradóttir Pind í honum fyrir hönd BSRB. Í hópnum eiga einnig sæti fleiri fulltrúar launafólks, atvinnurekenda og stjórnvalda. Formaður hópsins er dr. María Rún Bjarnadóttir.
ILO 190 var samþykkt árið 2019 og er fyrsta alþjóðasamþykktin sem fjallar sérstaklega um ofbeldi og áreitni á vinnumarkaði. Íslensk stjórnvöld lýstu því yfir sama ár að samþykktin yrði fullgilt og hafa BSRB og önnur heildarsamtök launafólks um árabil kallað eftir því að þeirri vinnu yrði lokið. BSRB fagnar því að ráðherra hafi nú skipað vinnuhópinn og lagt áherslu á að störfum hans verði lokið hratt.
Á Íslandi er þegar í gildi ágætt regluverk um áreitni og ofbeldi á vinnumarkaði. Engu að síður er ljóst að gera þarf breytingar á lögum og reglugerðum svo Ísland uppfylli að fullu skuldbindingar sínar samkvæmt samþykktinni. Þar má meðal annars nefna að viðurkenna þarf betur tengsl ofbeldis í nánum samböndum og vinnumarkaðar og tryggja þolendum réttindi í starfi, svo sem launað leyfi og vernd gegn uppsögnum.
BSRB og önnur samtök launafólks stóðu fyrr á árinu fyrir fundi um þetta málefni og birtu grein þar sem fjallað var um nauðsyn slíkra breytinga. Í kjölfarið átti BSRB samtal við ráðherra um mikilvægi þess að halda áfram vinnu við fullgildingu samþykktarinnar.
Gildissvið ILO 190 er jafnframt víðtækara en núgildandi vinnuverndarlöggjöf hér á landi. Samþykktin tekur meðal annars til starfsnema og umsækjenda um störf og verndar fólk ekki aðeins á vinnustaðnum sjálfum heldur einnig í öðrum samskiptum tengdum vinnu, í almannarými og á leið til og frá vinnu. Þá kveður hún á um úrræði vegna brota og leggur skyldur á stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins varðandi forvarnir, fræðslu og vitundarvakningu.
Aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni, bæði á vinnustöðum og í samfélaginu, hafa lengi verið meðal helstu baráttumála BSRB. Bandalagið hlakkar til að taka þátt í vinnunni og leggja sitt af mörkum til að útrýma megi faraldri kynbundins ofbeldis á Íslandi og tryggja öllum heilbrigt og öruggt vinnuumhverfi.