Stofna sérfræðingahóp til að meta áhrif COVID

Sérfræðingahópur sem á að meta áhrifin af COVID-19 hefur þegar tekið til starfa.

Heildarsamtök launafólks, ASÍ, BSRB og BHM, hafa skipað starfshóp sem falið er að leggja mat á efnahagsleg áhrif COVID-kreppunnar með áherslu á áhrifin á vinnumarkaðinn.

Hópurinn mun gera tillögur um aðgerðir til að fyrirbyggja langtímaskaða af efnahagskreppunni og tryggja öfluga viðspyrnu þegar heimsfaraldurinn líður undir lok. Hópnum er ætlað að horfa sérstaklega til viðkvæmra og jaðarsettra hópa og fjalla um að hvaða leyti aðgerðir geta haft áhrif á jöfnuð og félagslegt réttlæti. Hópurinn tekur þegar til starfa.

Í sérfræðingahópnum eiga sæti:

  • Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ, formaður
  • Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í viðskiptafræði og fulltrúi í fjármálaráði
  • Guðrún Johnsen, efnahagsráðgjafi VR
  • Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB
  • Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði
  • Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur BHM
  • Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði
  • Ásgeir Sverrisson, sérfræðingur ASÍ, mun starfa með hópnum

„Covid-19 hefur sýnt svart á hvítu fram á mikilvægi traustra opinberra innviða. Við vinnum okkur ekki út úr kreppunni með því að veikja innviðina, heldur þvert á móti með því að styrkja þá. Með því að greina áhrif kreppunnar og aðgerða gegn henni á jöfnuð og félagslegt réttlæti má koma í veg fyrir að teknar séu stefnumótandi ákvarðanir sem ýta undir ójöfnuð og skara eld að köku hinna fáu,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

„Á krepputímum eins og þessum eru teknar ákvarðanir í efnahagsmálum sem geta haft áhrif á samfélagið til langs tíma. Slíkar ákvarðanir verður að taka út frá almannahag, ekki sérhagsmunum. Hópurinn mun leggja mat á aðgerðir stjórnvalda og gera tillögur um leiðir til að tryggja að efnahagskreppan verði ekki dýpri og langvinnari en hún þarf að vera,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ.

„Stefnumótun um leiðir út úr kreppunni verður að byggja á traustum grunni. Með því að leiða saman sérþekkingu fræðafólks og reynslu og þekkingu úr starfi verkalýðshreyfingarinnar er hægt að stuðla að upplýstri ákvarðanatöku og veita stjórnvöldum virkt aðhald,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?