Starfsmannafélag Kópavogs hélt vinnufund stjórnar og orlofsnefndar 3. nóv. sl. Af því tilefni bauð Marta Ólöf Jónsdóttir formaður félagsins, formanni og framkvæmdastjóra BSRB í heimsókn í Bæjarlindina.
„BSRB leggur mikla áherslu á að vera í góðu samtali við aðildarfélögin sín og heyra hvaða málefni brenna á félagsfólki og ræða sameiginlegar áskoranir. Slíkt samtal er mikilvægur þáttur í því að styrkja samstarf innan bandalagsins og tryggja að áherslur BSRB endurspegli reynslu og hagsmuni starfsfólks á vinnustöðunum“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Hún er um þessar mundir að hitta allar stjórnir aðildarfélga BSRB.