Kröfuganga og baráttukaffi 1. maí
01maí
01 maí kl. 11:00-23:59
Almennt
BSRB tekur þátt í kröfugöngu í Reykjavík þann 1. maí sem endar með fundi á Ingólfstorgi.
Safnast saman á horni Laugavegar og Snorrabrautar klukkan 13:00 og hefst kröfuganga klukkan 13:30. Útifundur á Ingólfstorgi verður settur klukkan 14:10.
Dagskrá útifundarins:
- Söngfjelagið
- Ræða Lilju Sæmundsdóttur formanns Félags hársnyrtisveina
- Söngfjelagið
- Ræða Garðars Hilmarssonar formanns Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
- Amabadama flytur 2 lög
- Söngfjelagið/samsöngur – Maístjarnan og Nallinn
Kórstjóri Söngfjelagsins er Hilmar Örn Agnarsson. Hulda M. Halldórsdóttir syngur á táknmáli og Agnes Steina Óskarsdóttir túlkar á táknmáli. Fundarstjóri verður Þórarinn Eyfjörð.
Að fundi loknum býður BSRB upp á kaffi á Grettisgötu 89.