Ályktun aðalfundar BSRB um uppsagnir flugumferðarstjóra

Aðalfundur BSRB mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Isavia ANS að segja um eitt hundrað flugumferðarstjórum upp störfum. Það eru alvarleg stjórnunarmistök fyrirtækis sem þarf að hagræða í rekstri að beita ósanngjörnum aðferðum og virða að vettugi samráð við starfsfólk sitt og stéttarfélag þess.

Ríkur skilningur er á þörf félagsins til að hagræða í rekstri en það er óskiljanlegt að slíkar ákvarðanir séu teknar án þess að haft sé raunverulegt samráð við Félag íslenskra flugumferðarstjóra. Félagið hefur lagt fram tillögur til að mæta vandanum sem byggja á samstöðu og sátt allra flugumferðarstjóra. Isavia ANS hefur hunsað þær tillögur og þess í stað valið leið sem brýtur í bága við kjarasamning.

Aðalfundur BSRB skorar á Isavia ANS að draga uppsagnirnar tafarlaust til baka og beita lögmætum og sanngjörnum aðferðum í sátt við starfsfólk sitt til að mæta þeim tímabundnu áskorunum sem félagið stendur frammi fyrir. Það er mikilvægt til framtíðar fyrir fyrirtæki sem keppir um hæft starfsfólk á alþjóðamarkaði að viðhalda starfsánægju og tryggð starfsmanna.

Reykjavík, 28. maí 2020

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?