Ályktun Formannaráðs BSRB um  þjónustuskerðingu, fjöldauppsagnir og útvistun hjá Reykjavíkurborg 

 

Formannaráð BSRB mótmælir harðlega fjöldauppsögnum hjá Reykjavíkurborg á undanförnum vikum sem munu skerða þjónustuna verulega, ekki síst við börn, ungmenni og fólk í viðkvæmri stöðu. Á undanförnum misserum hefur verið ákall um bætta þjónustu við börn og ungmenni til að tryggja öryggi þeirra, þroska og velferð. Uppsagnirnar hjá Reykjavíkurborg vinna beinlínis gegn þeim markmiðum. Almannaþjónustan er grunnstoð samfélagsins. Þegar dregið er úr þjónustu við börn, fjölskyldur og aðra sem þurfa á þjónustunni að halda mun kostnaðurinn birtast síðar í auknu álagi á aðra opinbera þjónustu, atvinnuleysi, félagslegum vanda og auknum ójöfnuði.

Þegar ráðist er í svo viðamiklar skipulagsbreytingar er það eðlileg krafa að það sé gert út frá sýn um hvaða þjónustu eigi að veita og hvað þjónustu eigi þá að skerða. Engar greiningar hafa verið gerðar opinberar sem skýra þá sýn eða réttlæta þessa þjónustuskerðingu og ekki hefur verið sýnt fram á að tilefni sé til fjöldauppsagna. Útvistun á ákveðnum þáttum þjónustunnar kann að leiða til sparnaðar í launum en eykur kostnað í aðkeyptri þjónustu, dregur úr samhæfingu þjónustunnar og þar með gæðum hennar.

Formannaráð BSRB krefst þess að Reykjavíkurborg eigi samráð við starfsfólk og stéttarfélög og leggi fram þá greiningu sem liggur til grundvallar breytingunum. Draga verður úr þeirri óvissu sem skapast hefur fyrir þau sem treysta á þjónustu borgarinnar og þau sem starfa í hennar þágu.