Ályktun formannaráðs BSRB um vanda lágtekjufólks

Formannaráð BSRB krefst þess að stjórnvöld grípi þegar í stað til tímabundinna aðgerða til að bæta kjör atvinnulausra og auki einnig stuðning við lágtekjufólk til lengri tíma. Könnun sem Varða – rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins framkvæmdi sýndi fram á að um fjórðungur launafólks og helmingur atvinnulausra eiga erfitt með að ná endum saman. Niðurstöðurnar sýna einnig að sérstaklega þarf að bregðast við erfiðri fjárhagsstöðu og slæmri heilsu hjá innflytjendum, ungu fólki og konum.

Formannaráðið leggur til að stjórnvöld lengi tímabil atvinnuleysisbóta tímabundið í að minnsta kosti fjögur ár og hækki auk þess grunnbæturnar. Þá ættu bæði ríki og sveitarfélög að skapa sem fyrst fjölbreytt atvinnutækifæri fyrir fólk. Einnig þarf að auka stuðning við tekjulægstu hópana á vinnumarkaði með því að hækka barnabætur, vaxtabætur og húsnæðisbætur. Formannaráð BSRB kallar einnig eftir auknum framlögum til byggingar leiguhúsnæðis í almenna íbúðakerfinu verði fjölgað og að aðgengi tekjulágra að heilbrigðiskerfinu verði bætt.

Reykjavík, 11. febrúar 2021

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?