Ritstjórnarstefna fyrir vef BSRB

1. gr.

Á vef BSRB er fréttum og upplýsingum miðlað til félagsmanna og starfsmanna aðildarfélaga bandalagsins, sem og til fjölmiðla og annarra sem vilja fylgjast með því sem fram fer á vettvangi þess.

2. gr.

Kynningarfulltrúi BSRB er jafnframt ritstjóri vefs BSRB. Ritstjórinn undirbýr og velur efni sem fer inn á vefinn, að höfðu samráði við formann bandalagsins og framkvæmdarstjóra ef álitamál koma upp. Allt sem sett er inn á vefinn skal vera satt og rétt eftir því sem best er vitað þegar efnið er sett inn. Verði á því misbrestir skal leiðrétta þá svo fljótt sem auðið er.

3. gr.

Stefna BSRB skal vera aðgengilega á vef bandalagsins, sem og upplýsingar um aðildarfélög og starfsmenn bandalagsins. Þá eru allar nýjar ályktanir sem BSRB samþykkir settar inn á vefinn, sem og umsagnir um þingmál sem send hafa verið skrifstofu Alþingis.

4. gr.

Á vef BSRB birtast reglulega fréttir um það sem hæst ber hjá bandalaginu hverju sinni. Ritstjóri vefsins leggur sjálfstætt mat á fréttaefni og tekur ákvörðun um hvað á erindi inn á vefinn og hvað á ekki heima á þeim vettvangi.

5. gr.

Pistlar eftir formann BSRB og aðra talsmenn þess birtast reglulega á vef bandalagsins. Þar eru settar fram skoðanir forystu bandalagsins á ákveðnu máli eða málum. Ritstjóri vefsins leggur sjálfstætt mat á pistla og tekur ákvörðun um hvað á erindi inn á vefinn og hvað á ekki heima á þeim vettvangi.

6. gr.

BSRB leitast við að birta fréttir um það sem hæst ber hjá aðildarfélögum bandalagsins eftir því sem unnt er. Formenn aðildarfélaga, og eftir atvikum starfsmenn þeirra, geta óskað eftir því að fjallað sé um ákveðið efni á vefnum. Ritstjóri leggur sjálfstætt mat á efnið og tekur ákvörðun um hvort það verði birt óbreytt, efni unnið úr því og birt, eða efnið ekki birt á vefnum. Sú ákvörðun er meðal annars tekin út frá því hvort efnið er talið eiga erindi við lesendur vefsins, framboði á öðru efni á þeim tíma sem það berst og hagsmunum BSRB af birtingu efnisins.

7. gr.

Stjórn BSRB tekur endanlega ákvörðun um ritstjórnarstefnu fyrir vef bandalagsins. Allar breytingar á ritstjórnarstefnu skal leggja fyrir stjórn BSRB til samþykktar eða synjunar.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?