Sömu laun fyrir sömu störf!

 

Sveitarfélög landsins eru að mismuna starfsfólki sínu, fólki sem vinnur sömu eða sambærileg störf, jafnvel inni á sömu vinnustöðum, með þeim afleiðingum að sumir eiga að sætta sig við 25% minni launahækkun en aðrir. Þannig er starfsfólki gert að horfa upp á það að vinnufélagar þeirra, í nákvæmlega sömu vinnu, fái launahækkun frá 1. janúar, en það sjálft ekki fyrr en 1. apríl.

Um er að ræða fólk sem vinnur ómissandi störf, t.d. við umönnun barna, í grunnskólum og frístundaheimilum, þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk, í sundlaugum og íþróttamannvirkjum, höfnum, bæjarskrifstofum og áhaldahúsum, en sveitarfélögin borga lægstu laun á opinberum markaði. Þessi óbilgirni sveitarfélaga gagnvart starfsfólki sínu verður ekki liðin.

Aðildarfélög BSRB hafa því boðað til verkfalla í leik- og grunnskólum, frístundamiðstöðvum, sundlaugum, mötuneytum, íþróttamannvirkjum, þjónustumiðstöðvum, bæjarskrifstofum, áhaldahúsum og höfnum í 29 sveitarfélögum. Yfir 2500 manns taka þátt í aðgerðum BSRB sem eru umfangsmiklar og munu raska starfsemi sveitarfélaga og lífi fólks verulega. Ekki er gripið til verkfallanna af léttúð heldur til að knýja þau sveitarfélög landsins að samningsborðinu sem neita að leiðrétta launamisrétti gagnvart starfsfólki sínu.

Hér má finna myndrænt yfirlit yfir fyrstu aðgerðir:



 

Sveitarfélögin sem mismuna starfsfólki sínu eru eftirfarandi:

Kópavogsbær

Hafnarfjarðarbær

Mosfellsbær

Seltjarnarnesbær

Garðabær

Akureyrarbær

Reykjanesbær

Suðurnesjabær

Grindavíkurbær

Borgarbyggð

Sveitarfélagið Árborg

Sveitarfélagið Ölfus

Hveragerðisbær

Vestmannaeyjabær

Norðurþing

Ísafjarðarbær

Akraneskaupstaður

Dalvíkurbyggð

Sveitarfélagið Hornafjörður

Rangárþing eystra

Rangárþing ytra

Bláskógabyggð

Flóahreppur

Hrunamannahreppur

Grímsnes- og Grafningshreppur

Skaftárhreppur

Ásahreppur

Mýrdalshreppur

Skeiða- og Gnúpverjahreppur

Þingeyjarsveit

Sveitarfélagið Vogar

Eyja- og Miklaholtshreppur

Snæfellsbær

Grundarfjarðarbær

Stykkishólmsbær (Sveitarfélagið Stykkishólmur)

Dalabyggð

Vesturbyggð

Reykhólahreppur

Ísafjarðarbær

Bolungarvíkurkaupstaður

Tálknafjarðarhreppur

Súðavíkurhreppur

Kaldrananeshreppur

Strandabyggð

Húnaþing vestra

Sameinað sveitarfélag Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps (Húnabyggð)

Sveitarfélagið Skagaströnd

Skagabyggð

Sveitarfélagið Skagafjörður

Eyjafjarðarsveit

Hörgársveit

Fjallabyggð

Svalbarðsstrandarhreppur

Grýtubakkahreppur

Fjarðabyggð

Múlaþing

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?