Umsögn ASÍ, BSRB, BHM og KÍ um frumvarp til loftslagslaga. Mál nr. 202
ASÍ, BSRB, BHM og KÍ vísa til fyrri umsagnar samtakanna um frumvarp til laga um loftslagsmál frá 157. löggjafarþingi, og ítreka þau sjónarmið sem þar koma fram
1. https://www.althingLis/altext/erindi/157/157-2753.pdf
Samtökin leggja sérstaka áherslu á mikilvægi þess að tryggja raunverulega og formlega aðkomu launafólks og aðila vinnumarkaðarins að stefnumótun, framkvæmd og eftirfylgni
loftslagsaðgerða. Réttlát umskipti snúast ekki einungis um loftslagsaðgerðir heldur um áhrif loftslags- og tæknibreytinga og aðgerða þeirra vegna á störf, atvinnugreinar og
byggðir og hvernig megi tryggja að tækifærum og byrðum breytinganna sé skipt með réttlátum hætti. Þau fela í sér að afkoma launafólks og almennings verði tryggð í gegnum
yfirstandandi samfélagsbreytingar, vinnumarkaðsréttindi verði varin og að breytingarnar verði nýttar til að auka velferð og lífsgæði almennings.
Samtökin ítreka mikilvægi þess að komið verði á fót varanlegum þríhliða samráðsvettvangi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um réttlát umskipti. Slíkur vettvangur myndi stuðla að því að ákvarðanir stjórnvalda og aðgerðir byggðu á bestu fáanlegu þekkingu, grundvallarreglum um félagslegt réttlæti og mati á áhrifum þeirra á samfélagið, atvinnulífið og launafólk. Stofnun slíks samráðsvettvangs er mikilvæg forsenda þess að réttlát umskipti nái fram að ganga og að samfélagsleg sátt ríki um breytingarnar og leiðina fram á við.
Virðingarfyllst,
F.h. Alþýðusambands Íslands, BSRB, BHM og KÍ
Auður Alfa Ólafsdóttir
Kolbrún Halldórsdóttir
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Magnús Þór Jónsson