Umsögn BSRB um drög að frumvarpi til laga um breytinga á lögum til útlendinga

BSRB hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi til breytinga á lögum um útlendinga. Umsögn BSRB á þessu stigi einskorðast við niðurfellingu ákvæðis um dvalarleyfi vegna vistráðninga og ný ákvæði um dvalarleyfi til þolenda misneytingar og alvarlegra vinnumarkaðsbrota.

 

Dvalarleyfi vegna misneytingar og alvarlegra vinnumarkaðsbrota

Í 10. og 11. gr. frumvarpsins er fjallað um heimild til að veita útlendingi sem rökstuddur grunur er um að hafi sætt misneytingu eða alvarlegu vinnumarkaðsbroti af hálfu vinnuveitenda dvalarleyfi til 12 mánaða. Tilgangurinn er að hann geti leitað sér að öðru starfi eða leitað réttar síns kjósi hann það. BSRB styður þessa breytingu heilshugar og telur hana mjög mikilvæga. Síðustu ár hefur verið fjallað töluvert um aukna brotastarfsemi á vinnumarkaði og er ánægjulegt að stjórnvöld hafi fyrr á þessu ári gefið út stefnu með aðgerðum til að sporna við brotum þar sem m.a. er fjallað um þetta atriði. Stefnan var gerð í samstarfi aðila vinnumarkaðarins, stjórnvalda og ýmissa opinberra stofnana sem starfa við málaflokkinn.

Í 12. gr. er fjallað um skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfa á grundvelli misneytingar og alvarlegra vinnumarkaðsbrota. Þar er lagt til að annað hvort þurfi staðfestingu frá stéttarfélagi eða samtökum aðila vinnumarkaðarins um rökstuddan grun um misneytingu eða alvarlegt vinnumarkaðsbrot (a. liður) eða staðfestingu frá Vinnueftirliti ríkisins um að vinnuveitandi hafi verulega vanrækt skyldur sínar gagnvart útlendingi (b. liður). BSRB telur að afar mikilvægt sé að staðfesting frá stéttarfélagi geti verið grundvöllur útgáfu dvalarleyfis samkvæmt greininni. Vinnustaðaeftirlit ASÍ er lykilaðili í því að fylgjast með aðstæðum á vinnustöðum og stéttarfélög eru oftast fyrsti aðilinn sem einstaklingar sem orðið hafa fyrir brotum leita til.

Samkvæmt frumvarpinu er einnig gerð krafa um að fyrir liggi staðfesting um að slit hafi orðið á ráðningarsambandi útlendings og vinnuveitanda. Hvorki er í ákvæðinu né í greinargerð með frumvarpinu fjallað um hvernig afla eigi slíkrar staðfestingar eða á hvaða formi hún skal vera. Verður nægilegt að sýna fram á að starfsmaður hafi rift ráðningarsambandi sínu eða þarf að leggja fram frekari gögn? Það er líklegt að erfitt sé fyrir þolanda misneytingar eða alvarlegra vinnumarkaðsbrota að afla sér staðfestingar frá þeim vinnuveitanda sem braut á honum og það getur einnig verið erfitt fyrir stéttarfélag starfsmannsins að útvega slíka staðfestingu. BSRB leggur því til að þetta atriði verði skoðað betur, eða allavega skýrt í greinargerð með hvaða hætti þetta skilyrði verði uppfyllt. Til þess að ákvæðið nái markmiði sínu um að gera þolendum þessara alvarlegu brota kleift að leita að nýju starfi án þess að missa dvalarleyfi sitt verða skilyrðin fyrir veitingu leyfa að vera þess eðlis að raunhæft sé að uppfylla þau.

 

Niðurfelling ákvæðis um vistráðningar

Í 14. gr. frumvarpsins er kveðið á um niðurfellingu 58. gr. núgildandi laga um veitingu dvalarleyfa vegna vistráðninga. BSRB styður þessa breytingu heilshugar. Upprunalegur tilgangur ákvæðisins og aupair kerfisins var menningarskipti en síðustu ár hefur umsóknum fjölgað mikið og kerfið hefur færst frá upprunalegum tilgangi sínum. Í greinargerð með frumvarpinu er fjallað um að rökin fyrir því að fella heimildina úr gildi séu þríþætt; leyfið veitir engin atvinnuréttindi eða réttindaávinnslu líkt og þekkist á vinnumarkaði, dvölin fer fram á einkaheimili þar sem eftirlit er erfitt og að dvalarrétturinn er bundinn við eina tiltekna fjölskyldu. Þetta setur einstaklinga í vistráðningu í afar viðkvæma stöðu og gerir það að verkum að ef brotið er á þeim er sérstaklega erfitt að leita réttar síns. Jafnframt segir að skilin milli menningarskipta og atvinnuþátttöku séu orðin óskýr og að eðlilegra væri að einstaklingar sem sinna vinnu á heimilum gerðu það á grundvelli kjarasamninga.

Þessi sjónarmið ríma vel við málflutning ASÍ varðandi vistráðningarkerfið. Sambandið hefur um nokkurra ára skeið fjallað um misnotkun á aupair kerfinu, þar sem einstaklingar í vistráðningu vinni oft mun meira en reglur segja til um eða sinni störfum á fleiri en einu heimili. Vistráðningar séu þannig notaðar til þess að fá ódýrt vinnuafl inn á íslensk heimili.

Með frumvarpinu er ekki verið að útiloka vistráðningar heldur verða þær áfram leyfilegar innan EES svæðisins, en EES borgarar njóta mun ríkari réttinda hér heldur en einstaklingar með dvalarleyfi vegna vistráðningar gera í núverandi kerfi.

 

Fyrir hönd BSRB

Dagný Aradóttir Pind

lögfræðingur